15 leiðir til að spara í vikulegum matarinnkaupum

Að spara pening er oft einfaldara en maður heldur, því oftar en ekki felst sparnaðurinn í að áætla aðeins fram í tíman, vera vakandi yfir því hvað maður versla, minnka við sig óþarfa eða venja sig á nokkra góða siði sem eru fljótir að bæta upp budduna. Hér eru 15 atriði sem mjög auðveldlega geta sparað okkur pening í hverri viku, þegar við verslum fyrir heimilið.

1. Ekki kaupa eitthvað við kassan. Já, ekki falla í þá gryfju að kaupa eitthvað þegar þú stendur í röð við kassan. Að öllum líkindum eru þetta óþarfa kaup.

2. Ekki fara að versla svöng/svangur. Margsannað að svengd eykur líkurnar á að versla óþarfa.

3. Fylgstu með auglýsingum matvöruverslana. Vertu vakandi yfir verðum og tilboðum. Verslaðu þar sem hagstæðast er fyrir þig.

4. Áætlaðu upphæð fyrir vikuleg matarinnkaup. Að halda heimilisbókhald er gott og þá sérstaklega ef þú áætlar þá upphæð sem þú ætlar að nota fyrir matarinnkaupin og passar alltaf uppá að fara ekki framyfir þá upphæð yfir vikuna.

5. Haltu þig við innkaupalistan! Ekki búa til innkaupalista áður en þú ferð að versla, en kaupa síðan eitthvað allt, allt annað.

6. Skoðaðu verðin þegar þú verslar. Ekki halda að þú vitir eða munir hvað allt kostar. Þótt þú sért að kaupa nauðsynjavörur, áttu alltaf að skoða verðmiðana fyrir hverja vöru.

7. Nýttu þér (sum) magnkaup. Kauptu stórar pakkningar þegar það á við. Dæmi um þetta eru til dæmis klósettpappír, eldhúsrúllur og fleiri vörur sem þú kaupir reglubundið inn og átt alltaf heima. Slepptu þeim þó, þegar það eru stórar pakkningar af einhverju, sem þú veist að klárast jafnvel ekki heima fyrir.

8. Eltu tilboðin. Ef þú sérð auglýsingu um gott tilboð sem hentar þér, fylgdu því þá eftir og nýttu þér tilboðið. Kauptu jafnvel fleiri en eitt stykki og settu í frystinn ef tilboðið er mjög hagstætt.

9. Skoðaðu skápana. Áður en þú leggur af stað, skoðaðu þá í skápana og athugaðu hvað þú átt til. Ekki kaupa sumar vörur of oft og auka þannig á matarsóun.

10. Fylgstu með árstíðabundnu verði. Sumar vörur eru hagstæðar á vissum árstímum. Þetta getur til dæmis átt við grænmeti og ávexti. Fylgstu með þessum verðbreytingum og verslaðu í takt við verðþróun þeirra.

11. Frosið getur líka hentað. Að versla frosnar matvörur hentar oft vel og getur verið hagstætt. Skoðaðu í frystinum hvað er á boðstólnum og hvað það kostar og hvað hentar þínu heimili.

12. Skipuleggðu matseðilinn viku fram í tíman. Að skipuleggja matseðil heimilisins viku fram í tíman og versla í samræmi, hefur sýnt sig í rannsóknum að er mun hagstæðara en ella.

13. Áætlaðu magn. Sýndu hagsýni með því að áætla það magn sem þú þarft af hráefni í máltíðir og dragðu þannig úr matarsóun og sparaðu pening um leið.

14. Nýttu þér viðskiptakort. Sum fyrirtæki bjóða tryggum viðskiptavinum upp á afsláttarkort. Þótt þér finnist afslátturinn kannski ekki mikill, er óþarfi að sleppa því að nýta sér hann og eins skaltu athuga í hvaða tilfellum, fyrirtæki eru að auglýsa viðskiptakort, sem þú gætir nýtt þér. Þetta er til dæmis algengt hjá olíufyrirtækjunum.

15. Eldaðu úr afgöngum. Á matseðlinum fyrir vikuna, skaltu gera ráð fyrir einhverjum máltíðum sem eru úr afgöngum. Reyndu að nota hugmyndaflugið til að búa til spennandi máltíðir úr afgöngum, þú minnkar matarsóun og sparar pening.

Við mælum með á Hringbraut: 

Tveir frábærir þættir á dagskrá á miðvikudögum sem þú vilt ekki missa af! Keppnin Besti maturinn með Völu Matt og Heilsuráð Lukku. Fylgstu með frá kl.20 á miðvikudagskvöldum á Hringbraut.

\"\"

 

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!