,,15 atriði sem gerast alltaf hjá mér í megrun"

Við vitum það öll að megrun er ekki málið, en hver getur sagt að hann hafi aldrei farið í það átak að vera í megrun? Eða kallast það að breyta um lífstíl? Eða bara ,,að halda í við sig”? Zetan rakst á skemmtilegan lista sem rithöfundurinn og bloggarinn Victoria Fedden skrifaði á bloggsíðuna sína, victoriafedden.com. Þar listar hún upp, þau 15 atriði sem hún segist alltaf lenda í þegar hún fer í megrun.

 Nei...., sko breytir um lífstíl.

 Eða þannig.....

Hér er listinn (kannist þið við hann?)

  1. \"\"Ég segi öllum að ég sé ekki beint í megrun, heldur ætli ég að breyta um lífstíl (enda megrun ekki málið, eða svo er sagt!)
  2. Ég fer að vigta mig í tíma og ótíma en aldrei nema nakin, búin að pissa, búin að þurrka mér og búin að blása hárið á mér þurrt (þá er ég örugglega sem léttust!)
  3. Eftir 2-3 heilsusamlegar máltíðir, er ég farin að ræða nýja lífstílinn við vini og vandamenn (verð sumsé óþolandi!)
  4. Ég hendi allri óhollustu úr skápunum (og trúi fyrir alvöru að ég muni ekki neyta þessara óhollustuvara aftur)
  5. Eftir nokkra daga, ákveð ég að fara á hreinsikúr því mér sýnist ég ekkert vera að léttast (eða er vigtin biluð?)
  6. Ég fer að fara í göngutúra með skrefmæli (en sé á útreikningum um brennslu að ég þyrfti að labba landið þvert og endilangt til að missa þau kíló sem stefnt er að!)
  7. \"\"Ég fer að gúggla alls kyns megrunarátök og meðferðir í boði fyrir þá sem vilja léttast (panta mér jafnvel tíma hjá næringarfræðing, grasalækni eða einhverjum sambærilegum)
  8. Ég fer að taka inn töflur eða búa mér til boostdrykki sem einhver hefur sagt mér að virki
  9. Eftir nokkrar vikur segi ég vinum og vandamönnum að ég sé ekki farin að léttast, því ég sé að styrkja vöðvana og standi því í stað
  10. Ég reyni að troða mér í gömul föt og verð svekkt því þau eru enn alltof lítil!
  11. Eftir um það bil viku, er ég sannfærð um að öll sykurlöngun og löngun í almenna óhollustu er farin og ég sé búin að yfirstíga hana
  12. \"\"Ég fer að bleyta í chia fræjum og drekka þau í vatni á morgnana
  13. Ég byrja að fá mér hollustusnarl á milli mála eða á kvöldin, ég meina: eru þau ekki allt í lagi?
  14. Ég tek ákvörðun um að helgarnar séu ekki eins ,,heilagar” og virkir dagar, að minnsta kosti má ég leyfa mér hlutina á laugardögum og kannski sunnudögum líka
  15. Ókei, ég enda með að ,,falla” um helgar en tek ákvörðun um það á sunnudagskvöldi að fara í hörkukúr frá og með mánudagsmorgni, kannski að ég prófi Paleo kúrinn næst?

---

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!