Sætustu myndirnar af miley cyrus og liam hemsworth saman

Eins og flestir vita eflaust, eru Miley Cyrus og Liam Hemsworth tekin saman aftur. Í þetta sinn á að leggja allt í þetta: Þau vilja vera saman! Sem dæmi má nefna, felldi Miley Cyrus niður tónleika í janúar, til þess eins að vera með Liam í Ástralíu, þaðan sem hann er.

Við skulum því skoða nokkrar af sætustu myndunum af þeim saman og rifja upp ástarsöguna. 

\"\"

Miley er 23 ára og Liam 26 ára. Sögusagnir eru uppi um það nú, að parið ætli að trúlofa sig (aftur!) fljótlega.

\"\" 

Miley og Liam kynntust við tökur myndarinnar The Last Song, árið 2009. Þar léku þau par og voru aðdáendur myndarinnar ekki sviknir næstu mánuði á eftir, því leikararnir sjálfir voru síður minna ástfangin en í myndinni sjálfri.

 \"\"

Þetta ár sagði Miley í viðtali við Seventeenmagazine að fyrst og fremst væru þau samt rosalega góðir vinir.

 \"\"

Í maí árið 2013, trúlofuðu þau sig. Miley sagði þá við fjölmiðla:

 ,,Ég er í skýjunum og hlakka mikið til þess að eiga hamingjusama ævi með Liam.”

 \"\"

En fljótlega fóru að koma brestir í sambandið og árið 2014, hætti parið saman. Bæði byrjuðu þau að hitta annað fólk og um tíma, virtust engar fréttir berast af Miley aðrar en þær að hún væri að hneyksla fólk uppúr skónnum.

 \"\"

Í nóvember á síðasta ári, fóru hins vegar að heyrast sögur um að parið væri að hittast á ný. Þann mánuðinn, gaf Miley Liam, lítinn sætan hvolp sem heitir Dora.

 \"\"

Jú, ástin hafði tekið sig upp á ný.

\"\" 

Fjölmiðlar ytra og aðdendur beggja, eru auðvitað yfir sig hrifin. Myndir og fréttir, sem minna vel á svipaðar fréttir og frá árinu 2009, birtast víða og vinsældir þeirra aukast um leið. Sjálf hefur Miley sagt að hún sé búin að draga úr stöðufærslum á samfélagsmiðlunum, því það sé liður í því að setja hvort annað í fyrsta sæti en ekki aðra.

\"\" 

Já allt fyrir ástina!

Þessi mynd var tekin á þakkargjörðardaginn, en þá eyddi parið deginum með fjölskyldu Miley.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!