Áfangasigur fyrir moggann og miðflokkinn

Ríkisstjórnin hafði ekki þingstyrk til að leggja orkupakkamálið fram á Alþingi fyrr en utanríkisráðherra tókst að semja við andófsmenn í eigin þingflokki með nokkuð snjallri töfralausn. Ritstjórum Morgunblaðsins og forystumönnum Miðflokksins hefur ekki tekist að nota þann rúma tíma sem þeir fengu í sumar til þess að vinda ofan af þessu samkomulagi.

En þeir hafa eigi að síður unnið nokkurn áfangasigur.

Fjölþjóðasamvinna eða Brexit-Trumplínan

Stjórnmálabaráttan hér heima endurspeglar það reiptog sem á sér stað vítt og breytt um heiminn um þessar mundir. Annars vegar eru þeir sem fylgja fjölþjóðasamvinnu eins og aðild okkar að innri markaði Evrópusambandsins byggist á. Hins vegar eru þeir sem fylgja Brexit-Trumplínunni um að samskipti ríkja eigi fremur að byggjast á tvíhliða samningum.

Eitt og sér er orkupakkamálið ekki stórt í sniðum. En það hefur orðið stórt af því að það snýst í grunninn um þessi hugmyndafræðilegu átök samtímans.

Sjálfstæðisflokkurinn endurskoðar eðli og inntak aðildarinnar að innri markaði Evrópusambandsins

Nú í aðdraganda orkupakkaatkvæðagreiðslunnar á Alþingi hafa áhrifamenn úr röðum þingmanna og ráðgjafa Sjálfstæðisflokksins komið fram til þess að færa rök fyrir mikilvægi tvíhliða samninga. Um leið eru þeir að deyfa þá áköfu málafylgju fyrir gildi innri markaðar Evrópusambandsins sem fram kom hjá nokkrum frjálslyndum þingmönnum flokksins á vorþinginu. 

En það sem mestu máli skiptir er að formaður Sjálfstæðisflokksins kom með tvær yfirlýsingar í Kastljósi í síðustu viku í sama tilgangi. Önnur var sú að endurskoða þyrfti alla orkulöggjöfina. Í hinni sagði hann að endurskoða þyrfti eðli og inntak þess að vera þátttakandi í EES-samstarfinu.

Með þessu er Sjálfstæðisflokkurinn augljóslega að koma til móts við sjónarmið Morgunblaðsins og Miðflokksins.

Fyrirfram var þess að vænta að málefnaleg slagsíða á þessa hlið sæist í kjölfar  atkvæðagreiðslunnar.  En hitt að hún skuli birtast með svo skýrum og afgerandi hætti fyrir atkvæðagreiðsluna bendir til þess að Morgunblaðið og Miðflokkurinn séu að ná betra taki en ætla mátti á stóra samhenginu í þessu hugmyndafræðilega reiptogi. Það er umtalsverður árangur.

Miðflokkurinn fær svigrúm til hugmyndafræðilegrar forystu yst til hægri

Með kröftugum og einörðum stuðningi Morgunblaðsins virðist Miðflokkurinn þannig vera á góðri leið með að ná hugmyndafræðilegri forystu yst á hægri væng stjórnmálanna. Miðað við skoðanakannanir eins og þær standa virðist aðild hans að þessari ríkisstjórn blasa við eftir næstu kosningar.

Vængurinn yst til hægri segir ekki enn berum orðum að Ísland eigi að yfirgefa innri markað Evrópusambandsins. En þessi orðræða sýnir að það er verið að opna leiðina fyrir þá vegferð.

Átök milli popúlisma og klassískrar rökræðu

Sjálfstæðisflokkurinn mun freista þess að sitja á girðingunni eins lengi og kostur er. Það gefur Miðflokknum aftur á móti svigrúm til þess að vera meira afgerandi og mótandi um stefnuna. Viðreisn og Samfylking munu líklega hafa forystu fyrir fjölþjóðasamvinnu eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn á sínum tíma. 

Í húfi eru miklir hagsmunir fyrir íslensku þjóðina. Það er því brýnt að hugmyndafræðileg umræða um þessar tvær leiðir haldi áfram. Sú umræða mun líka snúast um aðferðafræði. Á annað borðið munu þeir róa sem beita einföldunum popúlismans. En á hitt borðið munu þeir róa sem telja að gera þurfi út um mál af þessu tagi með klassískri rökræðu.