Yndistónlistin er omam

Óhætt er að segja að landsmenn hafi beðið með óþreyju eftir nýrri plötu íslensku yndisgrúppunnar Of Monsters and Man sem nýtur auðvitað vinsælda langt út fyrir landsteina. Fyrstu lögin eru farin að heyrast af gripnum sem lofa svo góðu að þungu fargi er eiginlega létt af mörgum manninum, ekki síst þeim tónlistarpælurum sem telja að önnur plata hljómsveita sem slá almennilega í gegn verði alltaf verri en frumburðurinn, sem í tilviki OMAM, var nánast eins og greatest hits eftir giska langan feril. Það er einhver barnsleg gleði í ballöðum sveitarinnar og þessi ríka, fallega og hrífandi frumþörf til að tjá sig, eins og einhver fullorðinn leikskóli á ferð, fullur lífsgleði.