Skemmtiþáttur Hringbrautar, Karl Ágúst og sonur fer í loftið í kvöld svo undan mun verkja, en hann er ekki fyrir pólitískt viðkvæma. Þeir feðgar hlífa öngvum í kvöld, enda hefur það aldrei staðið til.
Fyrsti þáttur Karls Ágústs og sonar í vetur var á dagskrá fyrir viku - og strax í öðrum þættinum sem sýndur er klukkan 21:30 í kvöld má auðveldlega greina að samleikur feðganna er að slípast all hressilega. Eyvindur Karlsson er sonurinn og samtal þeirra feðgar er aldrei minna en eiturbeitt.
Og í kvöld er tími til kominn að stríða íslenskum jafnaðarmönnum sem áttuðu sig kannski ekki á því fyrr en um seinan að XS merkir extra small. Þeir bresta líka í lagið Litli frjálshyggjumaðurinn og koma með tillögur um hvaða eignir þjóðarinnar megi selja núna í aðdraganda næsta hruns.
Sumsé, Karl Ágúst og sonur klukkan 21:30 í kvöld - og haldið ykkur fast ...