Það er full ástæða til að hrósa aðstandendum sjónvarpsþáttanna Ófærð fyrir góða vinnu við handritsgerð, persónusköpun og tökur á vettvangi. Marglaga sagan rígheldur, en vettvangur glæpsins er einnig kaldranalega sannfærandi. Hvað er íslenskara en einangruð byggð í miðjum vetri þar sem kaldir vindar hafa læst klónum sínum um menn og mannvirki? Einhverjr hafa sagt þættina vera gamaldags, en kann skýringarinnar að vera að leita í miðborgarhroka, að allt sem komi utan af landi sé sjálfkrafa úrelt? Nei, Ólafur Darri, Ilmur, Ingvar, Pálmi og Þorsteinn og allt þetta fólk sem er að drepast úr kulda ofan í aðþrengdum Tröllaskaganum er sannfærandi í smæð sinni og fullkomnum efa um hvað sé að gerast í grennd við það. Og hér sem fyrr hefur Baltasar Kormákur passað upp á að hvergi er slegið af kröfum fagmennsku, hvort heldur er í hljóði, tökum, lýsingu og staðarvali. Hringbraut mælir með RÚV á sunnudagskvöldum - og megi sú ríkisrekna einbeita sér enn frekar að svona efni sem litlar einkareknar stöðvar hafa eðlilega ekki efni á að framleiða ...
Vitaskuld mælir hringbraut með ófærð
Fleiri fréttir
Nýjast