Fari kosningar eins og ný skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir, þá yrði líklega mynduð vinstri stjórn framsóknarflokkanna þriggja, Framsóknar, VG og Sjálfstæðisflokks. Þar sem um stjórn framsóknarflokka yrði að ræða þá er einsýnt að Sigmundur Davíð formaður Framsóknar yrði áfram forsætisráðherra.
Þetta er auðvitð hrollvekjandi sýn því þessir þrír flokkar aðhyllast allir einangrunarstefnu og sjá framtíðina fyrir sér með íslenskri krónu í höftum. Það er samt ekki ástæða til að örvænta því þessi könnun FB er frekar ófullkomin miðað við aðrar slíkar kannanir. Úrtakið er einungis 800 manns og svarhlutfall ekki nema 65,8%. Það ber því að taka niðurstöðunni með varúð, einkum varðandi Sjálfstæðisflokkinn sem jafnan mælist mun verr í könnunum Gallup og MMR, síðast með 21,7% hjá MMR en 25% í Gallupkönnun.
Engu að síður er þessi nýja skoðanakönnun áminning um það sem gæti komið upp ef ekkert nýtt gerist á vettvangi stjórnmálanna. Það er sú hrollvekja sem gæti blasað við ef núverandi stjórnarflokkar héldu velli með því einu að taka þriðja framsóknarflokkinn, VG, inn í ríkisstjórn. Tilhugsunin ein ætti að vera fólki áminning um að leita lausna.
Viðreisn á eftir að koma fram á völlinn og gjörbreyta landslaginu. Þá hljóta krataflokkarnir að íhuga alvarlega að sameinast og freista þess að snúa dapurlegri stöðu sinni við. Þeir hafa engu að tapa þegar Björt framtíð er að þurrkast út og næði ekki mönnum á þing og Samfylkingin er komin niður í það fylgi sem Alþýðuflokkurinn sálugi var lengst af með.
Samkvæmt könnun FB fengju Píratar 36,3% greiddra atkvæða og 24 þingmenn, Sjálfstæðisflokkur 29,3% og 19 þingmenn, VG 9,9% og 7 þingmenn, Framsókn 9,9% og 7 þingmenn en Samfylking næði 8,2% og 6 þingmönnum. Þetta þýddi að framsóknarflokkarnir þrír gætu myndað stjórn með 33 þingmönnum. Aðrir kostir væru ekki sennilegir því varla þarf að búast við að Píratar færu að vinna með Sjálfstæðisflokki eða Framsókn en þeir gætu auðvitað myndað stjórn með Samfylkingu og VG. Hún hefði 37 þingmenn á bak við sig. En þá þyrftu Vinstri grænir að gefa talsvert eftir í Evrópumálum til að unnt yrði að koma slíkri stjórn saman. Þeir væru vísir með að fórna einangrunarstefnunni ef þeir fengju í staðinn forsætisráðherrastólinn í slíkri ríkisstjórn. Katrín Jakobsdóttir myndi reyndar sóma sér vel í því hlutverki.
En það eru 17 mánuðir til næstu kosninga. Margt á eftir að gerast á þeim tíma sem mun breyta þessari mynd. Viðreisn kemur fram og segist ætla að ná 25% fylgi. Sameiningar gætu átt eftir að gerast og enn önnur framboð gætu stungið upp kollinum.
Skoðum eftirfarandi sviðsmynd eftir kosningar vorið 2017: Viðreisn yrði stærsti flokkurinn með 23% fylgi og 15 þingmenn, Píratar fengju 20% og 13 þingmenn, Sjálfstæðisflokkur 18% og 12 þingmenn, Samfylking og Björt framtíð sameinuðust, fengju 16% og 10 þingmenn, Framsókn og VG fengju 10% hvor, Framsókn 7 þingmenn og VG 6. Önnur framboð fengju 3% samtals.
Þá gætu Evrópusinnaðir flokkar, Viðreisn, Samfylking og Píratar, myndað ríkisstjórn með 38 þingmenn á bak við sig. Stjórnaraðndstaðn yrði þá skipuð framsóknarflokkunum þremur með 25 þingmenn samtals.
Óskhyggja? Ef til vill. En er ekki allt hitt fullreynt?