Vinstri flokkar tvöfalda forstjóralaun

Vinstri flokkarnir í borgarstjórninni hafa á skömmum tíma nálega tvöfaldað laun forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Hækkað þau um 1,1 milljón króna á mánuði – í 2,4 milljónir á mánuði.


Hækkunin er langleiðina í 90% og jafngildir ein næstum fjórföldum þeim 300 þúsund króna lágmarkslaunum sem mörg verkalýðsfélög ætla að krefjast í komandi kjarasamningum.


Ekkert heyrist þó frá Samtökum atvinnulífsins eða Seðlabankanum um að svona launahækkanir stefni stöðugleika efnahagslífsins í hættu. Ef hins vegar þeir lægst launuðu fá meira en 3% hækkun – að ekki sé nú talað um ef þeir rjúka upp í heil 300 þúsund á mánuði – mun fjandinn verða laus og efnahagslíf þjóðarinnar hrökkva af hjörunum.


Almennir starfsmenn Orkuveitunnar og aðrir borgarstarfsmenn þurfa þó varla að kvíða. Fyrst Samfylkingin, Vinstri grænir og Björt framtíð geta – ótilneydd – hækkað forstjóralaun um 90% hlýtur almúgafólk að geta hugsað sér nokkuð gott til glóðarinnar. Þessir flokkar segjast jú vera sérstakir málsvarar alþýðu manna. Kannski fær þá alþýðan þriðjunginn af prósentuhækkun forstjórans – 30%?