Ég er ekki sérlegur talsmaður frekari einkavæðingar í heilbrigðisþjónustu landsmanna, sem vel að merkja er nú þegar að einum þriðja í verkahring einkaaðila, segir Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra og formaður Bjartrar framtíðar í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld.
Óttarr er með danskt og þýskt blóð í æðum sinum og alinn jafnt upp í Hafnarfirði og Bandaríkjunum og þessi blanda öllsömul færði honum nokkra sérstöðu á æskuárunum svo jaðraði við einelti, en altént stríðni, enda varð hann snemma sérstæður í fasi og háttum, jafnvel svolítill furðufugl sem toppaði að lokum sjálfan sig á sviði með hljómsveitinni HAM sem hafði það helst á stefnuskrá sinni að æra óstöðuga áhorfendur sína og gera þeim lífið leitt. Það tókst iðulega, ekki síst ef Jón Gnarr hafði hitað upp á undan með klúrum og óvinsælum kvæðum sínum sem hann öskraði framan í felmtri slegið liðið.
Svo fór að þeir félagar enduðu með öll tök á borgarstjórn Reykjavíkur þegar áratugur var liðinn af nýrrri öld og Óttar segir að enda þótt stofnanakerfið hafi sopið einhverjar hveljur til að byrja með hafi þeir fengið tóm til að sanna sig, sem þeir og gerðu, að því er hann heldur - og minnist borgarstjórnaráranna með Besta flokknum með hlýhug.
Svo fór hann á þing 2013 og var varla búinn að máta sig í þingsalnum þegar hann var orðinn formaður Bjartrar framtíðar sem lengst af kjörtímabilinu skrapaði botninn í skoðanakönnunum. Fjórir þingmenn komust þó í höfn í næstu þingkosningum, næsta óvænt - og tveir þeirra eru nú orðnir ráðherrar sem er býsna gott hlutfall, þar af hann sjálfur í ráðuneyti sem hann vonar innilega að hann geti horfið sáttur frá þegar þar að kemur, en hann segir reynsluna úr borgarstjórn nýtast sér vel á ráðherrastóli.
Hann kveðst hafa verið orðinn leiður á því að ganga alltaf í svörtum fötum á árum áður, hafi langað að skipta um stíl og sjái ekki eftir því; hann sé ráðherrann sem skeri sig úr og fólk taki eftir, nú síðast til dæmis á ráðherraþingi OECD þar sem hann var guli bletturinn á gráu myndinni - og svo hafi hann byrjað að aflita á sér hárið í þokkabót sem hafi komið til af því að hárskera hans hafi dreymt það fyrir. Já, hann sé vissulega sérstæður, en það komi ekki í veg fyrir það að fólk taki mark á honum, kannski vegna þess að hann forðist átakastjórnmál og klækjabrögð í pólitíkinni og vilji vinna með fólki, en ekki á móti því.
Mannamál byrja klukkan 20:30 í kvöld.