Viljum við vera þrælar fjármagnsins?

Stærsti kostnaðarliður íslenskra heimila eru vextir. Við borgum meira fyrir lánin okkar en matinn. Þetta þekkist ekki í okkar nágrannalöndum. Eigum við að sætta okkur við þennan vaxtaþrældóm. Ég beini orðum mínum til jafnaldra minna í þessu pistli.

Í dag voru að koma tölur um verðbólgu í janúar 2016 og reynist hún vera mínus 0,6%. Á sama tíma er verið að rukka okkur um 6-11% vexti af lánunum okkar. Hvað er í gangi?

Venjuleg íslensk fjölskylda vinnur fyrstu tvo mánuði ársins bara fyrir vöxtum af húsnæðislánunum sínum umfram það sem fjölskyldur í nágrannalöndum okkar greiða. Það líkist því helst eins og íslensk heimili séu með yfirdráttarlán frekar en húsnæðislán.Þetta er skilgreining mín á vaxtaþrælkun!

Þessir háu vextir eru útskýrðir af bönkunum sem áhættuálag vegna óstöðugs gjaldmiðils, krónunnar sem Sigmundur Davíð segir að sé „sá stöðugasti og sterkasti gjaldmiðill í heimi“. Ég bara spyr, hvað var maðurinn að reykja þennan dag þegar hann sagði þetta!

Eru það bankarnir okkar sem eru að bjóða okkur upp á þessu lélegu kjör? Nei svarið er einfalt, vandamálið er: Krónan!

Það er sorgleg staðreynd að ungt fólk sem vinnur hörðum höndum að geta eignast íbúð mun seint geta það því þau enda sem vaxtaþrælar verðtryggingar sem er aðeins komin vegna tilveru krónunar.

Íslensk heimili eru ekki þau einu sem er að bugast undan tilvist krónunnar. Fyrirtæki taka nú mörg saman og flytja sig annað í von um betri rekstur. Aukin fjármagnskostnaður íslenskra fyrirtækja kemur fram í hærra verði á vöru og þjónustu en þekkist erlendis.

Ég velti því fyrir mér hver er að hagnast af krónunni, því það eru svo sannarlega ekki íslenskur neytendur.

Er það orðið augljóst að engin stjórnmálamaður er að vinna að hagsmunum neytenda, pólitísk kreppa ríkir í landinu og yfirlýsinga glaðir stjórnmálamenn eru of uppteknir að eltast við löngu horfið fylgi fremur að vinna heilshugar að niðurstöðu fyrir neytendur á meðan þeir sitja enn á þingi. 

Það er augljóst fyrir mér að 330.000 manna samfélag heldur ekki uppi sjálfstæðum gjaldmiðli, afhverju sjá stjórnvöld það ekki?

Í stefnu nýja stjórnmálaaflsins Viðreisnar stendur:

Tryggja hagsmuni ungs fólks og samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja með því að lækka vexti og verðbólgu til samræmis við nágrannalönd. Það verður ekki gert nema með því að taka upp annan gjaldmiðil.

Fylgist með Viðreisn!