Vigdís trompar stjórnarandstöðuna

Kæra Vigdís

Stjórnarandstaðan var rétt í þessu að leggja til útgjaldaaukningu við fjárlög upp á 16 milljarða - allt málefni sem við getum verið sammála um að séu þjóðþrifamál.  Má þar nefna 2,5 milljarða til viðbótar til Landspítalans og 5,3 milljarða til að leiðrétta kjör þeirra verst settu í samfélaginu þ.e. aldraðra og öryrkja.

Á móti þessum útgjöldum lagði stjórnarandstaðan til aukna skattheimtu á banka, stóriðju og útgerðina sem ég veit hins vegar að hugnast þér lítt.   En þú átt ás upp í erminni sem þú getur hvenær sem er dregið fram og trompað stjórnarandstöðuna.

Fjármálaráðherra er nefnilega nýbúinn að svara fyrirspurn á Alþingi um að áætlaður beinn árlegur vaxtakostnaður íslenskra heimila sé á bilinu 11 til 29 milljörðum hærri samanborið við vaxtastig alþjóðlegra mynta á borð við evru.  Ef íslensk heimili væru ekki svona vaxtapínd gætu þau sem sagt uppfyllt allan óskalista stjórnarandstöðunnar og vel það - og átt afgang!   Þetta gætir þú bent á nú þegar allir horfa til þín um aukið fjármagn.

En þessir milljarðar eru svo sem smáaurar því auðvelt er að bæta 100 milljörðum í púkkið.  Því 100 milljarðar er einmitt sú fjárhæð sem áætlað er að íslensk fyrirtæki borgi í umfram vaxtakostnað á ári vegna íslensku krónunnar.

Þú getur bent á að þjóð sem hefur efni á því að greiða 120 milljarða árlega í óþarfa vaxtakostnað hafi ekki efni á því að kvarta og kveina.   Nær væri að losa um þessa 120 milljarða með því að skoða upptöku alþjóðlegrar myntar enda yrði starf þitt sem formaður fjárlaganefndar miklu auðveldara fyrir vikið.  

Bentu stjórnarandstöðunni á að berjast frekar fyrir þessari lausn Vigdís enda mun væntanlega ekki standa á þínum stuðningi í því máli - eða hvað?