Séra Bjarni Karlsson minnti okkur nýlega á það að við erum öll fötluð að einhverju leyti. Ekki bara líkamlega heldur einnig hugarfarslega. Hann hvatti okkur til að líta í eigin barm og sjá okkar eigin fatlanir áður en við bendum á fötlun annarra.
Mér var einu sinni sagt að þegar fíflin væru orðin fleiri en fimm, þá væri spurningin hvort væri ekki nær að líta í eigin barm.
Það er ekkert mál að finna galla í förum fólks og dæma. Yfirleitt er þetta afleiðing okkar eigin vanlíðan eða minnimáttarkenndar.
Á samskiptamiðlaöld erum við komin með opinn vettvang til að láta allt það neikvæða og slæma sem upp í huga okkur kemur hreinlega vaða yfir allt og alla sem okkur mislíkar við.
Þessi samskiptamiðlaöld bíður einnig upp offramboð persónuupplýsinga um öll minni og meiriháttar atburði nágranna okkar.
Því miður hefur gleymst að með nýrri tækni þarf nýtt hugarfar, við gerum okkur upp að miðlar eins og facebook, instagram, snapchat og fleira séu endurspeglun raunveruleikans. Það er alls ekki rétt.
Ef þér líður illa, ert illa fyrirkallaður þá getur ekki verið hollt að festast í heimi sem endurspeglar aðeins það sem við viljum sjá og túlka. Öfundsýkin kallar ótrúlegasta fólk fífl, en aldrei skal kasta steinum úr glerhúsum.
Annað hvort erum við öll fífl, eða engin.
Ég legg til hugmynd að áramótaheiti sé að lifa í raunveruleikanum og nýtt jákvætt hugarfar.
Gleðilegt nýtt ár.