Nýverið var stofnunin Jeff Astle Foundation sett á laggirnar í Englandi til að vekja fólk til umhugsunar um alvarlegar afleiðingar höfuðáverka. Það er fjölskylda knattspyrnumannsins Jeff Astle sem stendur að stofnunni en hann lést árið 2002 aðeins 59 ára gamall. Hann var farsæll knattspyrnumaður og lék lengst af með West Bromwich Albion og var þekktur fyrir að vera góður skallamaður og er sagt að hann hafi skorað fleiri mörk með hausnum en fótunum. Eftir andlát hans leiddi krufning í ljós að dánarorsökin var heilabilun en sá sjúkdómur er þekktur meðal hnefaleikakappa og leikmanna í amerískum fótbolta. Dóttir hans sagði í viðtali í Independent í apríl á þessu ári að allt sem knattspyrnan hafi gefið föður sínum, hafi hún einnig tekið frá honum.
Í nýjasta tölublaði tímaritsins MAN er úttekt á höfuðáverkum í íþróttum og alvarlegar afleiðingar þess en töluverð vitundarvakning hefur orðið undanfarin ár er þau varðar. Þar kemur fram að hér á landi hefur íþróttafólk þurft að hætta æfingum og keppni, sumt alfarið, eftir að hafa fengið þung höfuðhögg. Á árum áður tíðkaðist að leikmenn hörkuðu af sér eftir höfuðhögg en nú í dag eru bæði leikmenn og þjálfarar sem betur fer meðvitaðri um hættuna sem getur stafað af heilahristingi en samkvæmt sérfræðingum á íþróttafólk aldrei undir nokkrum kringumstæðum að halda áfram æfingu eða leik eftir að hafa fengið heilahristing. Enda geta tvö eða fleiri höfuðhögg með skömmu millibili valdið dauða.
Það er staðreynd að mögulegt er að skipta um ýmsa líkamshluta, jafnvel hjarta og gerviliðamót geta jafnvel reynst okkur betur en þau sem við fæðumst með og laskast hafa á lífsleiðinni. Læknisfræðin aftur á móti á enn í þónokkrum vandræðum með heilann sem öllu ræður, það getur reynst erfitt að laga misfellur sem þar verða svo það er mikilvægt að passa þennan eina, sem er svo klár, viðkvæmur og stjórnsamur! Það veit guð.. og ég!
Í júní tölublaði MAN er að finna viðtöl við Maríu K. Jónsdóttur taugasálfræðing og dósent við Háskólann í Reykjavík, Hafrúnu Kristjánsdóttur, sviðsstjóra íþróttafræðisviðs Háskólans í Reykjavík, Jón Heiðar Gunnarsson, handboltamann og knattspyrnukonuna Maríu Björg Ágústsdóttur sem bæði hafa þurft að kljást við alvarlegar afleiðingar höfuðhögga í íþróttum.