Leikkonurnar Dóra Jóhannsdóttir og Steiney Skúladóttir vinna með leiklistarhópnum Improv Iceland. Lífið á Hringbraut spjallaði við þær á kaffi Babalú fyrr í vikunni. Leiklistarformið er upprunnið frá bandaríkjunum á sjötta áratug síðustu aldar og margir þekktir grínarar tileinkað sér það, líkt og Bill Murray, Tina Fey Amy Poehler. Fjölmargir taka þátt í sýningunum og kasta áhorfendur stundum fram einu orði sem leikararnir spinna svo óæft útfrá. \"Þetta er tómt grín en samt er mjög ákveðinn strúktúr á sýningunum\", segja Dóra og Steiney. \"Þetta form krefst þess að þú hlustir vandlega á mótleikararnn og spinnir með honum og sleppir auðveldlega takinu á þeim hugmyndum sem þú hefur um framhald leiksins\", bætir Dóra við.