Snaps er heitasti greiðaskálinn í höfuðborginni. Án nokkurs vafa, altént nú um stundir. Krúttlegur staður á horni Þórsgötu og Óðinstorgs í jaðri Þingholtanna þar sem gamli Brauðbær var á sínum tíma. Minnir um margt á þá stemningu sem best gerist á mið-evrópskum veitingahúsum þar sem andrúmsloftið er jafn mikilvægt og maturinn og þjónustan. Prófið rauðvín hússins, sem kostar jafn lítið og það er gott - og pantið ykkur bláskel með frönskum. Allt fræga fólkið á staðnum mun öfunda ykkur af valinu.
Skelltu þér á snaps
Fleiri fréttir
Nýjast