Nú skal það vera austrið

Veitingastaðir eru af öllu tagi, sumir fínir og aðrir hversdagslegir, einir venjulegir og enn aðrir furðulegir – og svo eru þessir sem eru svo einstaklega bragðgóðir að maður verður beinlínis háður þeim. Þannig er farið með Austurlandahraðlestina í Lækjargötu sem framreiðir hinn mjög svo dásamaða öskjumat sem Indverjar sjálfir borða helst í öll mál – og er sennilega mest notaði skyndibitinn á þarlenskum vinnumarkaði. Hér skal fullyrt að bragðbetri austurlenskan mat er vart hægt að finna í henni Reykjavík þessi dægrin – og þá skal hinu ekki gleymt; það er göldrum líkast hvað nan-brauðið á staðnum er yfirgengilega gott.