Án lítils efa er veitingaskálinn við austurenda Ölfúsárbrúar einhver besti og skemmtilegasti veitingastaðurinn á Íslandi þessi dægrin. Ekki einasta er umhverfið dásamlega gamaldags og heimilislegt, heldur er þjónustan svo góð og hlý og fagmannleg að maður á vart að venjast slíku af öðrum greiðaskálum á landinu. Og svo er það náttúrlega hitt; matseðillinn, sem er ekkert alltof langur og erfiður lofar virkilega góðu – og það sem mest er um vert; bragðið, eldunin og framsetningin er eins og best verður á kosið. Á þessum einstaka veitingastað er til dæmis hægt að fá bragðbesta salatið sem boðið er upp á þessa dagana á klakanum kalda; prófið það endilega, svartrótin klikkar ekki – og svo auðvitað súpurnar og kjötréttina, jafnvel líka svínið sem er hreinn unaður í munni.
Nú er það sko tryggvaskáli

Fleiri fréttir
Nýjast