Veistu hvað mjólkurlítrinn kostar?

Það getur skapað mjög líflegar umræður að tala um verð á mjólk.

Að þessu komst ég um daginn þegar ég hélt námskeið í samskiptafærni fyrir stóran hóp fólks og við vorum að ræða um tabú og ísbrjóta. Spurt var: ,,Hvað er bannað að ræða um á mannamótum og hvað er gott umræðuefni, ísbrjótur?“ Flestir nefndu að sjálfsögðu að alltaf væri hægt að ræða um veðrið. En ein kona spurði: ,,Vitiði hvað mjólkurlítrinn kostar?“ Upp úr þessu spruttu mjög líflegar umræður.  Í ljós kom að fólk hafði ekki hugmynd um verðið á þessari daglegu neysluvöru.

Það er líka nokkuð snúið að svara þessu. Sumir kaupa alltaf nýmjólk, aðrir fjörmjólk, léttmjólk, d vítamínbætta mjólk. Sumir kaupa alltaf einn og hálfan lítra en aðrir tveggja lítra fernur. Og svo er munur á milli verslana. Það hafði því enginn svar við þessari spurningu. En fólk hafði ýmsar sögur að segja.

Ein greindi frá því að þegar hún var að byrja að búa og var blönk með lítil börn keypti hún stundum bara 1 lítra af mjólk og bjó til ýmsa ,,rétti“ svo sem kringlusúpu og mjólkurgrauta.  Í þá daga vissi hún alltaf hvað mjólkin  kostaði og passaði að eiga alltaf fyrir mjólkurlítranum.

En svo breyttist eitthvað og við hættum að vita hvað daglegar neysluvörur kosta. Hvað gerðist?

Gæti verið að með tilkomu greiðslukorta hafi þessi verðtilfinning tapast? Við þurfum ekki lengur að eiga nákvæmlega fyrir mjólkinnni því við setjum þetta bara á visa, ,,den tid - den sorg“ skuldadagar eru einhverntíman seinna.

Verðbólga og möguleikar á yfirvinnu í áranna rás hefur líka örugglega sitt að segja. En skiptir máli að vita hvað mjólkin kostar?

Alveg örugglega. Hér er hægt að hækka matarverð án þess að við gerum meira en að tuða yfir fréttunum. Í nágrannalöndunum er verðvitund meiri og fólk lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Fólk beitir buddunni sem stjórntæki. Tekur völdin með því hvað og hvar það verslar. Íslendingar gera þetta ekki á meðan við vitum ekki hvað lífsnauðsynjar kosta.

Þetta hefur mikil áhrif á heimilisbókhaldið og hvernig fyrirmyndir við erum gagnvart börnunum okkar.

Í hádeginu er allt fullt af framhaldsskólanemum á skyndibitastöðum Kringlunnar. Skyldu þau einhverntíman spá í hvað lítri af mjólk kostar?

Í Danmörku er mjög algengt að taka með sér nesti í skólann og vinnuna. Og eftir að hafa unnið með dönsku verkafólki í Kaupmannahöfn fullyrði ég að þar veit fólk hvað lítrinn af mjólk kostar.

Og ég get lofað því að spurningin: ,,Veistu hvað mjólkurlítrinn kostar?“ er góður ísbrjótur á mannamótum.

Kær kveðja. Sirrý

P.s. 1 lítri af Ms Fjörmólk kostar 168 kr. Í Hagkaup.