Þegar máttur myndlistarinnar er hafður í huga er mikilvægt að endurnýja kynni sín reglulega við höfuðskáld hins tvívíða og þrívíða forms. Eitt þeirra er Ásmundur Sveinsson, þvílíkur brautryðjandi í ísenskri myndlist að þegar saga hans er skoðuð fallast mönnum hendur. Í Ásmundarsafni stendur yfir sýning fram til 26. apríl sem helguð er verkum þessa meistara sem féll frá fyrir röskum 30 árum, þá nærri níræður. Á sýningunni er þess minnst að á árinu 2015 eru 100 ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi og þar er nafn sýningarinar komið, sem er við hæfi því fáir listamenn hafa gert konum jafn hátt undir höfði í list sinni og einmitt Ásmundur Sveinsson.
Vatnsberinn – fjall + kona
Fleiri fréttir
Nýjast