Varar við kynlífi í sjálfkeyrandi bílum


Kanadískur sérfræðingur spáir því að kynlíf í bílum á akstri muni stóraukast þegar tækni sem er rétt innan seilingar muni leiða til þess að ökumenn hætta að aka og bílarnir sjá sjálfir að mestu um aksturinn. Slíkur losti gæti þó haft alvarleg áhrif á umferðaröryggi, því þótt bílarnir muni keyra sjálfir innan skamms þurfi ökumenn að fylgjast með akstrinum. Er vísað til svokallaðra semi-autonomous bíla.

\"I am predicting that, once computers are doing the driving, there will be a lot more sex in cars,\" segir Barrie Kirk frá Cana­di­an Autom­a­ted Vehic­les Centre of Excellence. Hann spáir kynlífsbyltingu í bílum og segir málið ekkert til að grínast með.

Vísast glotta þó sumir við lestur þessarar fréttar en sérfræðingar víða um heim nálgast það sem raunverulegt vandamál að einbeitingarskortur ökumanna í sjálfkeyrandi bílum gæti kostað sitt. Víða um heim er verið að setja reglur um sjálfkeyrandi bíla í því skyni að fólk einbeiti sér að umhverfi sínu, þótt bílarnir muni að mestu sjálfir sjá um streðið.