Ég var nýverið spurður að því hér í Svíþjóð hvort ég haldi að framtíðin og Íslendingar haldist í hendur. Svar mitt var það að framtíðin þarf ekkert á Íslendingum að halda. Ég segi eftirfarandi örsögu um norsku konuna með franska ríkisfangið þessu til útskýringar.
Helst má halda að nú sé hásumar íslenskrar réttlætisvakningar í kjölfar dóma Hæstaréttar yfir banksterum. Ófyrirleitin og vinsæl norsk kona með franskt ríkisfang var upphaflega fengin sem aðkeypt farandrefsinorn til að hrella íslenska bankstera.
Svo leiddist konan óbeðin út í að verða svo á valdi tíðarandans á Íslandi að hún er núna umbótakona „Silfur“ flokksins og leiðandi í andlegri byltingu flokkins.
Norska konan fyllir nú Íslendinga af sögum um ógnir bankakrakksins og óskapnaði óaldarinnar í kjölfar þess og fær öskrandi liðsmenn „Silfur“ flokksins til að æra borgara þess lands.
Og með harmtölum reika nú aðdáendur hennar sinnulausir um bæinn orðlausir og eiginlega hálfdauðir. Veiklundaður tilkomulaus ríkisstarfsmaður og andlegur jöfur og forsprakki „Silfur“ flokksins ruddi henni braut og gerði hana að voldugu afli á Íslandi.
Norska konan skipuleggur núna siðferðisreglur fyrir borgara þessa lands sem hafa það að markmiði að uppræta þau blygðunarlausu lögbrot sem hún ein sér.
Sárhrelldir Íslendingar eru búnir að fá nóg af norsku konuni og „Silfur“ flokknum. Konan er gerð úr efni ógnarstjórnar frönsku stjórnabyltingarinnar en skaust óvart inn í okkar samtíma. Gerið nú gagnbyltingu gegn konuni og „Silfur“ flokknum.