Vandræða-barnið tryggvi þór

Það má forysta Sjálfstæðisflokksins eiga að hún virðist ætla að leggja mikið á sig til að standa með Tryggva Þór Herbertssyni og tryggja honum viðurværi og verkefni eftir að hann datt úr af þingi fyrir 2 árum.


Að áeggjan formanns flokksins og helstu ráðgjafa hans bauð Tryggvi Þór sig fram gegn Kristjáni Júlíussyni, leiðtoga flokksins í Nau-kjördæmi, í prófkjöri fyrir síðustu kosningar. Þar var Tryggvi niðurlægður og lenti í 5. sæti. Hætti því á þingi en hefur rukkað Bjarna og félaga um greiða í staðinn fyrir að fara í þennan vonlausa slag við Kristján sem hafði unnið sér til vanhelgi að bjóða sig fram á landsfundi gegn Bjarna í formanninn.


Tryggvi var gerður að verkefnastjóra í fjármálaráðuneytinu yfir skuldaniðurfærslunni og fékk að rukka fyrir þjónustu sína sem verktaki með kr. 11,500 á tímann sem er vel í lagt þegar viðkomandi er með skrifstofu í ráðuneytinu, síma og alla þjónustu þar. Þetta var leið til að tryggja honum himinháar tekjur saman borið við opinbera embættismenn. Þessu var illa tekið í ráðuneytinu sem vonlegt er.


Nú er þessu verkefni að ljúka og þá þarf að finna eitthvað nýtt fyrir Tryggva Þór. Reynt var að gera hann að formanni Seðlabankans en Framsókn harðneitaði því og beitti neitunarvaldi, af einhverjum ástæðum, sem mér eru ekki kunnar.


En Tryggva Þór hefur nú verið falið það verkefni að reyna að selja leifarnar af sparisjóðakerfi landsmanna. Um það er fjallað í DV og því lýst hvernig fáir virðast sýna því áhuga að taka við þessu fallna kerfi. Bankasýslan hefur verið látin ráða Tryggva Þór í verkið en forstöðumaður hennar, Jón Gunnar Jónsson, er gamll skólabróðir fjármálaráðherrans. Ég spái því að ekkert komi út úr þessum æfingum með sparisjóðina. Þeir eru barn síns tíma og þeir hafa liðið undir lok á Íslandi þó enn eigi eftir að ráðstafa einhverjum fátæklegum afgöngum af þeirri köku. Menn sáu hvernig Sparisjóður Vestmannaeyja leið undir lok á einni helgi og rann inn í Landsbankann. Eins mun fara um það sem eftir er af þessu annars ágæta kerfi meðan það var og hét.


Mestu varðar að Tryggvi Þór Herbertsson mun geta skapað sér tekjur og viðurværi við að fást við þetta verkefni.


Ekki má gleyma því að Tryggvi var forstjóri Aska Capital í aðdraganda hrunsins. Bankinn var í eigu Karls Wernerssonar og fjölskyldu sem átti í nánu samstarfi við Bjarna Benediktsson og fjölskyldu um ýmiss viðskipti og vafninga. Trúlega býr Tryggvi Þór yfir margháttuðum upplýsingum sem verða vandmeðfarnar þegar málefni Aska og Saga Capital koma til nánari rannsóknar.