Útvarp Hringbrautar er að hefja sókn sína inn í veturinn - og fer þar fremstur fyrir liði tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson sem landsmenn hafa löngum dáð fyrir lög sín og leik á sviði.
Útvarp Hringbrautar er að finna á tíðninni 89,1 og þar verður einkum og sér lagi að finna notalega íslenska dægurmúsík í bland við það besta sem gert hefur verið í poppinu í útlöndum á síðustu áratugum. Það þarf enginn að grípa fyrir eyrun þegar stillt er á rásina, enda segir Eyvi að kappkostað verði að spila tónlist fyrir breiðan hóps landsmanna: \"Að öðru jöfnu leggjum við höfuðáherslu á íslenska tónlistarflytjendur - og þar er af nógu að taka, bæði af frumsömdu íslensku efni og eins þeim erlendu lögum sem íslenskir söngvarar og hljóðfæraleikaaraar hafa gert að sínum í gegnum tíðina. Hlustendur okkar eiga að geta gengið að vönduðu lagavali vísu,\" segir tónlistarstjórinn sem sjálfur stýrir morgunþætti Hringbrautar frá klukkan 09:00 til hádegis, en hann vekur athygli á því að síðasta hálftímann í þætti sínum spilar hann valin lög af bandaríska Billboard-listanum sem lifað hafa tímana tvenna og markað spor sín í tónlistarsöguna.
Hringbraut - útvarp í alfaraleið, mun einnig útvarpa völdum þáttum úr sjónvarpi Hringbrautar í vetur, en dagskrárgerð útvarpsins verður efld þegar líða tekur á skammdegið og má búast við að margar kunnar fjölmiðlaraddir muni heyrast þar á öldum ljósvakans.
Og munið, 89,1 - það er tíðnin.