Uppskrift að næsta kosningasigri framsóknar...

Framsóknarmenn eru þekktir fyrir að draga nokkur tromp fram úr erminni kortér í kosningar og ná miklu meira kjörfylgi en skoðanakannanir hafa bent til. En nú eru góð ráð dýr hjá Framsókn, sem sér fram á að missa 2/3 hluta fylgis síns og eitthvað svipað hlutfall þingmanna í næstu kosningum.

Ástæðan er einföld. Flokkurinn hefur svikið stóru kosningaloforðin. Það stendur ekki til að afnema verðtrygginguna af neytendalánum og leiðréttingin var – ja, hvað skal segja? – jú, hún var klúður sem nýttist helst þeim sem höfðu nógu breið bök til að þola aðstoðarlaust hremmingarnar sem sviptu þakinu af þúsundum fjölskyldna. Að öðru leyti var leiðréttingin fyrst og fremst niðurgreiðsla til fjármálafyrirtækja í landinu, svona ofan á verðtrygginguna, vaxtamuninn, þjónustugjöldin og allt hitt.

Spillingarskýið sem umlykur ríkisstjórnina er svo þétt að vart sést handa skil og þó að samstarfsflokkurinn sé þar í aðalhlutverki fer þó ekki hjá því að Framsóknarflokkurinn komi ávallt upp í hugann, þegar talið beinist að spillingu. Forsætisráðherrann virðist mestan áhuga hafa á skipulagsmálum í höfuðborginni, námsteikningum löngu látins arkitekts og því að vernda allt í sama horfi og var fyrir miðja þessa öld, þegar valdasól flokksins hans reis hæst.

Ríkisstjórnin stendur dyggan vörð um niðurgreiddan einkaaðgang sérvalinna vina að dýrmætustu auðlindum þjóðarinnar, heilbrigðiskerfið er á leiðinni norður og niður og ríkisbankakerfið dælir út eignum á spottprís til ættingja fjármálaráðherra og annarra vel valinna góðborgara.

Og fólkið er brjálað. Flestir ætla að kjósa Pírata en ekki gömlu flokkana og næstum enginn ætlar að kjósa Framsókn.

En, örvæntið ekki! Framsókn á nokkur tromp uppi í erminni. Nú getur Framsókn snúið leiknum sér í hag.

Það byrjar á því að gerð verður krafa á Sjálfstæðisflokkinn að hann taki tafarlaust þátt í að afnema verðtryggingu af öllum neytendalánum. Það mun Sjálfstæðisflokkurinn ekki gera því honum finnst svo ofur vænt um verðtrygginguna, sem hefur reynst svo mörgum forystumanninum þar á bæ svo vel svo lengi. Fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins yrði það næstum eins og að gefa nánum ættingja banvæna sprautu að afnema sjálfa verðtrygginguna.

Og þá springur ríkisstjórnin. Næsta sem Framsókn gerir er að bjóða stjórnarandstöðunni til samstarfs um að afnema verðtrygginguna og breyta stjórnarskránni fyrir vorið og láta svo kjósa til þings í sumar. Með þessu útspili veitir Framsókn Samfylkingunni náðarhöggið því þar á bæ er allt upp í háaloft einmitt vegna verðtryggingarinnar, fyrir nú utan forystuvandræðin. Það því mun ekki nást samstaða meðal stjórnarandstöðunnar um að ganga til liðs við Framsókn um afnám verðtryggingarinnar og nauðsynlegar breytingar á stjórnarskránni um nýtt auðlindaákvæði og beint lýðræði.

Fari svo ólíklega að samstaða náist við stjórnarandstöðuna um afnám verðtryggingar gerir það ekkert til fyrir Framsókn. Flokkurinn getur þá siglt inn í kosningar á því að hafa sprengt stjórnarsamstarfið við hinn spillta Sjálfstæðisflokk til að afnema verðtrygginguna og allt er í góðu.

En líklega næst þessi samstaða ekki og getur þá Framsókn bent á alla aðra flokka sem sökudólga þess að ekki náðist að afnema verðtrygginguna. Vilji kjósendur lýðræðisumbætur og afnám verðtryggingar verði þeir einfaldlega að tryggja Framsókn svo góðan sigur í þingkosningum að flokkurinn fái afl til að framkvæma kosningaloforðin sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið í vegi fyrir og stjórnarandstaðan ekki fengist til liðs við. Svona getur Framsókn unnið stórsigur og valið eftir kosningar hvort sjálfstæðismönnum, sem varla detta niður fyrir 18 prósent, eða Pírötum, sem eflaust munu ná meira en 18 prósentum, sérstaklega ef kosið verður fyrr en seinna, upp í stjórnarsængina.

Þetta er ein uppskrift að næsta kosningasigri Framsóknar en spurningin er vitanlega hversu áhættusæknir eru Framsóknarmenn? Þeir geta setið í eitt ár í viðbót í ríkisstjórn með sjálfstæðismönnum og úthlutað fjármálakerfinu til valinna aðila eða reynt að ná fjórum árum í viðbót í ríkisstjórn með einhverri svona fléttu.