Skoðaðu íslenskt brim

Íslensk náttúra býður upp á þvílíkt sjónarspil alla daga að ætla mætti að landið væri miklum mun stærra en það raunverulega er. Erlendir ferðamenn eru sólgnir í óviðjafnanlega víðáttuna sem hér er að finna, en einnig líka veðrin sem eru auðvitað engu lík því sem þeir eiga að venjast heiman frá sér. Og af hverju ekki að prófa að vera Íslendingur í eigin landi og skella sér út að einhverri ströndinni í ofsaveðri og kynnast því hvernig hafaldan ræðst að viðkvæmu landinu. Hægt er að nefna marga staði en fyrir íbúa suðvestanlands er nærtækast að nefna Reykjanestána. Að standa þar í haugasjó og aftakaveðri er sjónarspil sem enginn gleymir.