Lífið er til þess gert að prófa hlutina, skora sjálfan sig á hólm og reyna sig í nýjum aðstæðum. Og af hverju ekki að skella sér í Svett, en svo er það kallað þegar gegnheitum steinum er komið fyrir inni í lokuðu tjaldi svo úr verður rösklegur líkamshiti, fólkinu sem situr í kring til slíkrar vellíðunar að vart verður við annað jafnað. Svett er aldagömul aðferð til að þrífa sálina, róa hugann og ná jafnvægi í lífinu. Hægt er að prófa Svett víða um land og það kostar ekki mikið, en mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að njóta þess í algerum friði og enn meiri spekt.
Nú er það svett
Fleiri fréttir
Nýjast