Upplifir þú útþaninn maga? það er til lausn

Um 10-30% fullorðins fólks hefur kvilla sem kallast magaþemba. Þeir sem þjást af magaþembu hafa greint frá því að maginn virðist óþæginlega fullur og spenntur. Einnig getur hann verið bólginn eða útþaninn. Þá getur fólk fundið fyrir verkjum, miklu lofti í maga, rop og óhljóðum frá maganum og upplifa flestir sem þjást af kvillanum óþægilega tilfinningu líkt og þeir séu ávallt saddir.

Samkvæmt Dr. Syed Thiwan frá University of Noth Carolina þá getur magaþemba haft þau áhrif að hún truflar þann sem er með kvillann, við vinnu og margt fleira. Þegar það var borið saman við fólk sem þjáist ekki af þessum kvilla þá tóku þeir sem voru heilbrigðir miklu færri veikindadaga en þeir sem þjást af magaþembu. Einnig eru tíðar ferðir til læknis algengar og lyfjanotkun. Heilsutorg greinir frá helstu orsökum magaþembu ásamt þeim meðferðarúrræðum sem til eru.

Algengustu orsakir magaþembu eru:

  • Að gleypa loft
  • Hægðartregða
  • Brjóstsviði
  • Mjólkuróþol
  • Að borða of hratt
  • Þyngdaraukning
  • Of mikið af bakteríum í þarmi
  • Blæðingar
  • Snýkjudýr í görn
  • Lyfjanotkun
  • Gerfisykur – fructose eða sorbitol
  • Magaþemba getur einnig verið merki um að eitthvað alvarlegt sé að, eins og td:
  • Vökvi í maganum, sem getur orsakast af krabbameini, lifrasjúkdómum, nýrnasjúkdómum, hjartasjúkdómum og fleiru.
  • Hveiti og gluten óþol
  • Krabbamein á eggjastokkum
  • Brisið er ekki að virka sem skildi því það getur ekki framleitt næginlegt magn af ensímum fyrir meltinguna

Meðferðar úrræði fyrir magaþembu

Í mörgum tilfellum, þá eru einkenni magaþembu eitthvað sem hægt er að vinna gegn eða koma alveg í veg fyrir sem því að breyta um lífsstíl.

  • Ekki tyggja tyggigúmmí. Að tyggja tyggjó orsakar það að þú ert að gleypa of mikið loft og það orsakar útþaninn maga.
  • Reyndu að sleppa því að drekka gosdrykki.
  • Passaðu þig á mat eins og grænmeti úr kálfjölskyldunni, baunum og fleiru sem orsakar loft í maga.
  • Borðaðu hægt.
  • Ekki drekka í gegnum rör.
  • Léttu þig ef þú ert of þung/ur
  • Slepptu mjólkurvörum.

Ef þessi einkenni koma fram skaltu leita læknis:

  • Verkir í maga
  • Blóð í saur
  • Niðurgangur
  • Mikill brjóstsviði
  • Uppköst
  • Óeðlilegt þyngartap