Varla er til fegurri sveit á Íslandi en sú sem kennd er við Mývatn og liggur í 300 metra hæð yfir sjávarmáli innan um undarlega falleg fjöll og fell sem kringja ævintýralegt vatnið sem geymir margar fegurstu kynjamyndir íslenskrar náttúru. Mývatn að sumri er auðvitað vel kunnug stærð, enda sækja þangað ekki undir 300 þúsund ferðamenn yfir háannatíma sumarsins, en Mývatn að vetri er jafnvel ennþá kynngimagnaðra en sumarstemningin á svæðinu. Óvíða gerir meiri froststillur á landinu og fáir aðrir staðir á þessum árstíma tengja ferðamenn jafn sterkum böndum við náttúruna á jörðu sem himni og einmitt sveitin sem kennd er við mý og vatn.
Upplifðu vetrarríki mývatns
Fleiri fréttir
Nýjast