Það er óhætt að mæla með gönguferð um eitt fegursta listasafn landsmanna, Ásmundarsafn í Laugardal, en sumarsýning Listasafns Reykjavíkur, Listhneigð Ásmundar Sveinssonar, verður opnuð í Ásmundarsafni laugardaginn 9. maí kl. 16. Á sýningunni er ferli Ásmundar (1893–1982) gerð skil með lykilverkum úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Ásmundur Sveinsson var á meðal frumkvöðla íslenskrar höggmyndalistar og sótti innblástur fyrst og fremst í íslenska náttúru og bókmenntir, sem og til þjóðarinnar. Efnismikil, kröftug og stundum ógnandi verk hans eru lík þeim kynjamyndum sem oft má lesa úr íslenskri náttúru. Hann tileinkaði sér jafnframt meginstrauma alþjóðlegrar listsköpunar og gaf henni um leið íslenskt yfirbragð. Ásmundarsafn er helgað verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. Í safninu gefur að líta verk sem spanna allan feril listamannsins, en gönguferð um það er hrein upplifun og hugljómum eins og allir þeir sem þar hafa komið þekkja vel.
Upplifðu meistara ásmund
Fleiri fréttir
Nýjast