Upplifðu græna hattinn

Af og til koma til sögunnar tónleikastaðir sem þvílíkan dýrðarljóma stafar af frá fyrsta degi að helst verður líkt við voldugan galdur. Græni hatturinn er þessarar náttúru, klárlega ekki stærsta og dýrasta tónlistarhús sem starfar hér í heimi – og raunar grafið ofan í gamlan lager leikfangabúðar í kjallarakimum þess fagra húss sem nefnt er París af norðlensku lítillæti. En það er einhver nálægð, einhver nánd og slökun, svo og sjarmerandi samkennd sem gerir þessa gamaldags og heimilislegu tónastöð að höfuðvígi lifandi tónlistar á Íslandi. Og næsta helgi, takk fyrir; Todmobile í fanginu á þér, ekkert minna, Andrea og öll hin – við þessar líka kjöraðstæður.