Upplifðu dásemdir rub 23

Bestu veitingastaði landsins er fráleitt aðeins að finna í henni Reykjavík – og haldi menn það eru þeir illa haldnir af hroka. Áður hefur Lífsstíll mælt með Tryggvaskála fyrir austan fjall, en nú er það RUB 23 í Listagilinu á Akureyri. Ekki einasta er hönnun veitingahússins einstaklega vel heppnuð og hlýleg í gömlu kaffibrennslunni undir gilsbakkanum, heldur er matseldin og framreiðslan í algerum sérflokki. Kokkarnir eru algerlega jafnvígir á fisk og kjöt, en það sem lyftir staðnum mest er frumleiki og hugrekki í eldun.