Upplifðu ævikröm mullers

Með hækkandi sól er gott og jafnvel nauðsynlegt að sökkva sér ofan í dýpri sögurnar. Tími vorbókanna er hafinn og gjarnan eru þær linspjalda þessi árin sem skiptir ekki höfuðmáli, enda innihaldið aðalatriði. Sagan af Leifi H. Muller er eiginlega of vond til að vera sönn, stráklingur í námi í Osló sem endar sakir óvenulegra aðstæðna í útrýmingarbúðum nasista og er við það að verslast upp þegar stríðinu lýkur. Hugsanlega er hér á ferðinni fyrsta samtímaheimildin um voðaverk nasista á hendur gyðingum, en bókina skrifaði Leifur í lok stríðs - og er hún nú endurútgefin í tilefni 70 ára útgáfuafmælis. Lesandinn kemst lóðrétt niður á jörðina við lestur þessarar einstöku bókar - og hún skilur hann eftir í móki ...