Ungir neytendur verða frekar alkar

Þeim mun seinna sem ungt fólk byrjar að drekka áfengi, þeim mun minni líkur eru á að það þrói með sér alkóhólisma - séu á annað borð líkur á að alkólhólismi þróist vegna erfða eða umhverfis.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í samtali Páls Magnússonar við dr. Ingunni Hansdóttur, yfirsálfræðing SÁÁ, í þættinum Fíkn sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld.

Í þættinum verður m.a. fjallað um hugræna atferlismeðferð við fíkn. 

Fíkn er sjónvarpsþáttur sem sýndur er á Hringbraut á fimmtudagskvöldum. Þátturinn verður endursýndur auk þess sem hægt að nálgast alla sjónvarpsþætti Hringbrautar á vefnum, hringbraut.is.