Þrýstingur á breytingar kemur ekki síst frá unga fólkinu – ungu kynslóðinni sem virðist á flestum sviðum ætla að verða móður- og föðurbetrungar. Þetta er kynslóðin sem hafnar hefðbundnum stjórnmálaflokkum í vaxandi mæli enda eru píratar með yfirburðafylgi í þessum aldurshóp. Sú staðreynd veldur síðan vaxandi þrýstingi á gömlu flokkana og sennilega mun fátt flýta nauðsynlegri uppstokkun í íslenskum stjórnmálum en einmitt góð staða pírata og sífellt minnkandi flokkshollusta. Gömlu flokkarnir eru einfaldlega nauðbeygðir til að bregðast við ef þeir ætla að lifa af.
Staðreyndin er að unga fólkið er ekki hægt að mata á upplýsingum eins og gömlu flokksblöðin gerðu einatt hér áður fyrr með því að sýna heiminn annað hvort svartan eða hvítan. Þetta er netkynslóðin þar sem upplýsingar berast hratt manna á milli og þetta er kynslóðin sem veit að alnetið gleymir engu. Geðstirðir leiðarahöfundar gömlu fjölmiðlanna með gamaldags áherslur ná einfaldlega ekki til unga fólksins og fátt veldur þeim og þeirra meiri hugarangri en þverrandi völd.
Við sem eldri erum erum fyrir löngu orðin of samdauna ástandinu og vonum sífellt að breytingar séu handan við næsta horn. Við þekkjum ekkert annað en að vinna lengur og bera minna út býtum en fólk í nágrannalöndum okkar. Við látum hagsmunaöflin jafnvel telja okkur trú um að akkúrat í þessu ástandi líði okkur best. Varðhundar kerfisins kunna að spila á okkur og áfram hlaupum við eins og hamstrar á hjóli og áttum okkur fæst á því að á meðan spila þeir í allt annarri deild en við – og taka sífellt stærri sneið af kökunni.
Unga fólkið er sem betur fer að rísa upp gagnvart þessu kerfi enda er unga fólkið beittasta vopnið í átt að betra samfélagi. Það gerir kröfur um að lífskjör hér verði með svipuðum hætti og best gerist í nágrannalöndum okkar – að öðrum kosti er það einfaldleg farið.
Margrét Kristmannsdóttir