Tvær vindbarðar konur

Einkar athyglisverð sýning á verkum Júlíönu Sveinsdóttur og hinnar færeysku  Ruth Smith verður opnuð á Kjarvalsstöðum á Kvennafrídaginn. Listakonurnar eiga margt sameiginlegt, en báðar fæddust á vindbörðum og gróðursnauðum eyjum í Norður- Atlantshafinu, Júlíana á Heimaey í Vestmannaeyjum og Ruth á Suðurey í Færeyjum. Leiðir þeirra lágu í Listaakademíuna í Kaupmannahöfn en þær voru meðal fyrstu kvenna sem gerðu myndlist að ævistarfi. Mannleg einsemd og einangraðra samfélaga fyrri tíma birtist í verkum þeirra frá heimahögunum sem urðu  þeim að yrkisefni allan starfsferilinn - og þá ekki síst hin sterku öfl hafsins þar sem manneskjan skynjar smæð sína frammi fyrir óendanleika náttúrunnar. Þetta er skyldumæting ...