Trítlaðu þér inn á tíu dropa

Sumir veitingastaðir hafa óútskýranlegan sjarma - og halda honum enda þótt þeir séu komnir til ára sinna. Það er eins og tíminn vinni ekkert á þeim. Þetta á til dæmis við um kaffihúsið Tíu dropa á Laugaveginum, sem lætur vissulega ekki mikið yfir sér frá götunni séð, enda grafinn niður í kjallara, en þegar inn er komið tekur á móti fólki andrúm friðar og vellíðunar, fyrir nú utan prýðilegar veitingar. Þetta á jafnt við um miðjan dag og á kvöldin; þesi vin í streitu hversdagsins kippir manni niður á jörðina, svo um munar - og ekki kvartar maður yfir því að hlusta á vandaða píanótónlist á kvöldin sem fær mann hreinlega til að gleyma stund á stað í góðra vina hópi, með kaffi, öl eða rauðvínsglas í hendi ...