Það jafnast ekkert á við Vulnicura Bjarkar Guðmundsdóttur þessa dagana, jafnvel líka fyrir þá sem hafa ekki verið æstir velunnarar þessarar frjóu listakonu á síðustu árum. Við þá ber einfaldlega að segja; hlustið á Björk í besta formi - hér kemur hún til dyranna eins sönn og manneskjuleg og hægt er að hugsa sér, beisk og meyr eftir skilnað við ástvin sinn en reynir, eins og hún getur, að púsla lífi sínu saman á ný. Vulnicura er persónulegasta og aðgengilegasta plata Bjarkar um langt árabil, full af mennsku og merkilegum tilfinningum.
Vertu meyr með vulnicura
Fleiri fréttir
Nýjast