Menn geta endalaust rifist um það hvaða tónlistarmaður á Íslandi skari fram úr og eigi að heita öðrum mönnum hæfileikaríkari. Bubbi Morthens mun þar alltaf koma til greina, sá afkastamesti kúnstner sem auðgað hefur íslenskt menningarlíf svo ríkulega að fólk hlýtur að bugta sig og þakka. Karlinn, sem verður sextugur á næsta ári, er sífellt að endurnýja sig - og er alls óhræddur að útsetja sig á alla vegu. Nú stefnir hann á graðhestatónleika með strákunum í Dimmu í systrunum Hörpu og Hofi í mars og það er þegar byrjað að fergja þakið á húsunum báðum.
Nú er það dimmur bubbi
Fleiri fréttir
Nýjast