Forsetaframbjóðandinn Ástþór Magnússon hugðist greiða atkvæði utankjörstaðar í forsetakosningunum á laugardag en á hann runnu tvær grímur þegar atkvæðaseðillinn reyndist vera autt blað. Engu framboði hefur verið skilað og því í raun enginn í framboði.
Ástþór sagði frá þessum raunum sínum í síðdegisþættinum BadaBing! á Hringbraut FM 89.1 á mánudag og sagðist hafa gert athugasemdir við listann og boðist til þess að leysa málið með því að skila þá og þegar meðmælendalista sínum og leggja þannig fram fyrsta framboðið. Það reyndist ekki hægt og Ástþór situr því enn uppi með meðmælendalistann sem bæði honum og Sturlu Jónssyni hefur reynst ómögulegt að skila inn.
Ástþór greindi einnig frá því að tökulið frá RÚV hafi verið á staðnum og myndað uppákomuna en stofnunin hafi ekki séð ástæðu til að sýna frá tilraun hans til að kjósa. Þetta telur hann til marks um að RÚV leggi sig fram um að sniðganga ákveðna frambjóðendur, hann þar með talinn.
Ástþór deildi hart á RÚV í samtalinu og sagði Guðna Th. Jóhannesson greinilega vera frambjóðanda RÚV, líkt og Þóra Arnórsdóttir fyrir fjórum árum. Þá sagðist hann taka framboði Baldurs Ágústssonar fagnandi. Þeir þekktist vel en kynni þeirra hófust fyrir margt löngu þegar Ástþór var fljúga sitt fyrsta sóló-flug, villtist á áttum og flaug í veg fyrir Baldur sem öskraði á hann í talstöðinni og lét hann síðan heyra það óþvegið á Reykjavíkurflugvelli þegar báðir voru lentir.
-ÞÞ
Hægt er að hlusta á þáttinn hér. (Samtalið við Ástþór hefst á mínútu 36:45)
BadaBing! er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18
Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.