Afturkomur hafa verið harla vinsælar í íslensku tónlistarlífi hin síðari ár og hafa ekkert endilega verið allar mjög merkilegar, enda er það svo að gamli tíminn á misjafnlega brýnt erindi við blessaðan nútímann sem getur jú verið trunta, eins og segir í laginu. En endurkoma Brunaliðsins er einhvern veginn þeirrar náttúru að menn og konur leggja við eyrun. Boðaðir tónleika í Eldborginni 18. apríl eru í meira lagi freistandi – og það finnst greinilega mörgum því uppselt er á fyrri tónleikana klukkan 19.30 en eitthvað af miðum er eftir 22.30. Pálmi, Laddi, Ragga Gísla og allir hinir eiga að baki þvílíka smelli að það hálfa væri miklu meira en nóg.
Tími fyrir bruna
Fleiri fréttir
Nýjast