Tilraunaeldhúsið á bessastöðum

Ég bið Ólaf Ragnar Grímsson að færa þá persónulegu fórn að gefa EKKI kost á sér í forsetaembættið að nýju.

Forsetinn fór um víðan völl með Sigurjóni Egilssyni í þættinum Á Sprengisandi sl. sunnudag. Tilgangur Ólaf var augljós. Hann var að undirbúa þjóðina undir áframhaldandi framtíð sína í forsetaembættinu og panta fjöldaáskoranir.

Auðvitað er Ólafur Ragnar fyrir löngu búinn að ákveða að hann gefi kost á sér til embættis Forseta Íslands á næsta kjörtímabili. Hann er sannfærður um að íslenska þjóðin byggi framtíð sína á því að hann sé alltaf í þessu þarflausa embætti. Forseti að eilífu.

Ólafur Ragnar er nú að setja saman hugvekju um þá óvissu sem sé í stjórnmálum á Íslandi sökum fylgis við stjórnleysingja sem kalla sig Pírata. Anarkistarnir hafa ofurtrú á beinu lýðræði og fyrirlíta auk þess froðusnakk á við það sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur tamið sér. Ólafi Ragnari stendur stuggur af anarkistum enda eru þeir til alls vísir.

Hugvekja þessi verður kölluð nýjársávarp og verður að venju sneysafull af væmnum orðhengilshætti, torráðnum hortittum og hálfkveðnum vísum. Ólafur Ragnar setur nú vikapilta sína, þá Guðna Ágústsson, Baldur Óskarsson og Einar Karl Haraldsson, í það niðurlægjandi starf að minna þjóðina á að án hans á Bessastöðum sé framtíð þjóðarinnar í stórri hættu. Vikapiltarnir fá hluta þjóðarinnar til að senda bænaskrá á Bessastaði fyrir áramót.

Ólafur Ragnar þakkar sér auðvitað fyrir að Ísland er ekki lengur ESB umsóknarland og að Ísland hafi unnið sigur í Icesave og að efnahagsmálin snúi nú til betri vegar vegna uppgangs í ferðaþjónustu landsmanna. Ólafur telur sig vera með eitt tromp á hendi en það gæti reynst tvíeggjað sverð. Enn er ósvissa um stjórnarskrárbreytingar. Hann hyggst á næsta kjörtímabili koma í veg fyrir að breytingar á stjórnarskránni helgist af því sem hann kallar pólitískum hrossakaupum. Markmið hans er einungis að koma í veg fyrir að vald forsetaembættisins verði skert eða öllu heldur að það verði gert skýrara þannig að einstaklingur í því embætti geti ekki togað það út og suður eins og hann hefur leyft sér. Það er einmitt það sem samstaða gæti tekist um á Alþingi. Að skerða vald forseta og jafnvel að leggja embættið niður. Því ekki að fela forseta þingsins að sinna þessum þarflausu verkum?

Þó Ólafur Ragnar styðji núverandi ríkisstjórn þá er það einbeittur vilji hans að skipa utanþingsstjórn að loknum Alþingiskosningum vorið 2017. Hann treystir því að upplausn verði svo mikil á vettvangi stjórnmálanna vegna uppgangs Pírata og innkomu Viðreisnar að ekki verði unnt að mynda meirihlutastjórn. Tilraunaeldhúsið á Bessastöðum á eftir að framreiða þann rétt á vegum matreiðslumeistarans Ólafs Ragnars Grímssonar.

Til þess að þessi stóri draumur matreiðslumeistarans rætist þarf að endurkjósa hann á næsta ári. Það er verkurinn.