Mikið umæðuefni meðal Rússa í sumar hafa að sögn verið aðgerðir stjórnvalda við að eyðileggja fjallvaxið magn af innfluttum matvælum frá ESB-löndum, flutt inn í trássi við bann stjórnvalda. Í ágúst voru í rússnesku sjónvarpi myndir af brennslu eða urðun á hinu forboðna evrópska, svo sem ostum, svínakjöti og ávöxtum. Þá herma vestrænir miðlar að viðskiptabannið virki ekki þegar tollgæslan hirðir fé við að eyða aðeins hluta sendinga.
Innflutningsbannið í Rússlandi, sem einnig var sett á Ísland í ágúst, hafði þá tekið til Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Noregs, Kanada og Ástralíu í eitt ár sem gagnráðstöfun við viðskiptabanni þeirra gagnvart Rússlandi. Aðild Íslands staðfestir því þá frumskýldu okkar að standa vörð með öðrum um um frelsi þjóða og sjálfstæði. Um var að ræða viðbrögð við innrás Rússa í annað Evrópuríki, Úkraínu, og yfirtöku á landsvæði þess. Það var fyrsta slíka ofbeldisaðgerð frá seinni heimsstyrjöldinni, í senn gróflegt brot á alþjóðarétti og samkomulagi um friðhelgi landamæra eftir kalda stríðið. Valdastöðu og þarmeð öryggisráðstöfunum var umturnað, sérstaklega hvað okkur snerti vegna mikils vígbúnaðar Rússa í næstu grennd við Ísland.
Leiðtogafundur Evrópusambandsins 6.mars 2014, fordæmdi sterklega yfirgang Rússa Stöðvaðar voru viðræður um nýjan samstarfssamning við Rússland, lokið setu þeirra í G8 hópi iðnríkja og slitið viðræðum um aðild að OECD. Leiðtogafundur NATO í Wales í september 2014 lýsti yfir stuðningi við aðgerðir ESB. Reyndar á hlutleysinginn Sviss, utan viðkomandi alþjóðastofnana, á fullan þátt í aðgerðunum með því að innleiða þær í landslög. Þessu fylgdu síðari ákvarðanir m.a. um frystingu eigna um 150 rússneskra aðila í ESB-löndum og bann við komu þeirra þangað. Í júní 2015 voru teknar frekari aðgerðir varðandi fjármálasamskipti, viðskiptabann sett á vopnabúnað og tæki við orkuvinnslu.
Undanþágur frá þessum ákvörðunum voru ákveðnar og svaraði Europe Direct upplýsingaþjónusta ESB, fyrirspurn með tölvupósti 19. ágúst í þýðingu minni:
Til að ná samstöðu, voru ýmsar undanþágur skilgreindar:
Í fyrsta lagi hefur gas verið undanþegið aðgerðunum þar sem mörg aðildarríki ESB eru mjög háð framboði rússnesks gass . Í öðru lagi eru undanþegnai fjármálaðgerðir ESB-útibúa (svörtlistuðum) rússneskra banka starfandi í a.m.k. sjö aðildarríkjum, þeirra á meðal Farkklandi, Þýsklandi, Austurríki og Kýpur (með meira en 20 milljarða evra eigin fjár í árslok 2013). Í þriðja lagi eru undanþegin framkvæmd áður gerðra samninga, sem opnar fyrir veruleg undanskot. ( e opening considerable loopholes.)
Engan skyldi undra um undanþágur eða sérstöður þegar kemur að viðskiptasamstarfi. í Evrópu. Út frá meginreglum er samvinnan að sjálfsögðu sniðin að hagsmunum og ólíkri atvinnulegri uppbyggingu þátttökuþjóða. Þannig hefur Evrópusambandið í sinni 50 ára merkissögu verið vettvangur stöðugra samninga um það sem kallað er dýpt og breidd samstarfsins, sem tekur til 28 aðildarríkja í stað 6 fyrst. EFTA var upphaflega eins konar skuggi af ESB og aðildarsamningur Íslands frá 1970 er nærtækt dæmi um sveigjanleikann í efnahagssamstarfinu. Íslandi voru veittar nauðsynlegar sérlausnir, þ.e. sérsniðið aðlögunartímabil, viðskiptafrelsi með sjávarafurðir, viðskiptahöft á fljótandi eldsneyti til verndar austurviðskiptum, iðnþróunarsjóð og tvíhliða samninga fyrir útflutning kindakjöts. Harla fámennt starfslið okkar í Genf naut ómetanlegs stuðnings annara fastanefnda og sérfræðinga í EFTA og GATT. Það stóðu allir með okkur þegar stigið var fram í alvöru.
EFTA-samningurinn varð efnisleg fyrirmynd fríverslunar Íslands við ESB í EFTA/EES, sem er undirstaða hins mikla vaxtar utflutnings til hátekjumarkaða Evrópulanda, ómissandi þáttur velferðar Íslendinga Þýðingarmikið fyrirtækjasamstarf hefur orðið td á vegum Samherja, sem á hlut í og tekur virkan þátt í rekstri útvegs- og fiskvinnslufyrirtækja , einkum í Þýskalandi, Póllandi,Bretlandi og Færeyjum. Þessi erlendu umsvif eu rúm 55% af heildarstarfsemi félagsins
Þessa er minnst til að efla skilning á því, að það er ástæða til að ætla að aðgengilegum aðildarsamning yrði lokið þegar sá þráður er tekinn upp að nýju. Því skal á það reynt. Hefði hið misráðna spor að slíta aðildarviðræðunum ekki verið stigið, ætti Ísland sem fullgildur aðili á leiðtogafundi Evrópusambandsins 6.mars 2014 að hafa þá og síðar sitt að segja um viðskiptabann Rússa. Þegar hvatt er til samstarfs af vinaþjóðum er lítt við hæfi að þeir séu úthrópaðir og vilji hvorki né geti tekið við Íslendingum. Og vonandi er það ekki ætlun neins að troða Íslandi inn á Rússlandsmarkað makríls í gegnum bakdyr gustugaútréttinga. Varðandi viðskiptabannið á Rússlandi , hefur utanríkisráðherra verið afdráttarlaus um að málið varði þá samstöðu sem tryggir jafnframt varnir okkar og öryggi. Það ber vissulega að þakka.