Þegar fólk lendir í persónulegum ógöngum þarf stundum að gera átak til að endurreisa viðkomandi einstaklinga. Þeir sem lenda í mótlæti geta tekið á sínum málum, hvort sem er vegna veraldlegra vandamála, óreglu eða veikinda. Allir eiga rétt á nýjum tækifærum ef þeir vilja bæta sig.
Sama gildir um fyrirtæki og stofnanir sem fara út af sporinu. Alþingi Íslendinga er á villigötum. Löggjafarsamkoman er ekki að virka eins og til er ætlast. Traust til þingmanna er í lágmarki samkvæmt mælingum og þjóðin er orðin hundleið á vinnubrögðum Alþingis sem einkennast af gagnslitlu þrasi og orðahnippingum. Núverandi þingmenn sjá ekki alltaf stóru myndina og eru of fastir í aukaatriðum.
Þeir sem hafa fylgst lengi með þingstörfum átta sig á að fólkið sem valist hefur til þingstarfa er ekki eins öflugt og frambærilegt og áður var. Það þarf ekki að fara langt aftur í tímann til að finna hóp af öflugum þingmönnum og ráðherrum úr öllum flokkum. Nú fást fáar kempur við þingstörf á Íslandi. Þetta þarf að breytast.
Eitt dæmi um þá vanvirðingu sem hlutverki og störfum þingsins er sýnd, er sú staðreynd að þingmenn skuli leyfa sér að stunda háskólanám samhliða setu á Alþingi. Fram kom nýlega að 7 af 63 þingmönnum eru í háskólanámi. Með þessari framkomu er verið að senda þau skilaboð út í samfélagið að þingmennskan sé ekki fullt starf og það sé alveg óhætt að sinna tímafrekum hugðarefnum og verkefnum samhliða. Einhverjir líta á þetta sem hrein vinnusvik.
Það þarf að endurreisa Alþingi. Það verður ekki gert með öðrum hætti en þeim að samstaða náist um að breyta um vinnubrögð og það þarf nýja strauma í stjórnmálum hér á landi. Það þarf að sem innleiða ný og faglegri vinnubrögð. Nokkuð ljóst er að einhverjir af gömlu flokkunum sem enn verða eftir að loknum næstu kosningum sjái að ekki verði undan vikist að breyta vinnubrögðum. En efti til vill þarf nýja leiðsögn.
Ég trúi því að ein ástæða á miklu fylgi Pírata sé ákall um gjörbreytt vinnubrögð í þinginu.
Til þess að fá öflugt fólk á þing að nýju, þarf að bæta starfskjör alþingismanna. Ég tel fulla ástæðu til þess að skoða þann möguleika að fækka þingmönnum og bæta starfskjör þeirra að sama skapi. Ekki eru aðstæður til að bæta kjör þeirra umtalsvert nema til fækkunar komi samtímis.
Hvernig væri að fækka þeim í 43 og verja sparnaðinu í að bæta starfskjör þingmanna? Ég trúi því að með þeirri aðgerð fengjum við öflugra fólk til starfa á Alþingi Íslendinga og gætum endurreist þessa mikilvægu stofnun til fyrri vegs og virðingar.
Að lokum, það er löngu úrelt að sunnan megin Hvalfjarðarganga er fólk með hálfan atkvæðisrétt á móti fólki sem býr norðan megin.
Guðmundur Örn Jóhannsson
Framkvæmdastjóri og útgefandi