Þúfan sem var nærri því að velta hlassinu

Formenn stjórnarflokkanna hafa komið saman á lokuðum fundi til að freista þess að halda lífi í laskaðri ríkisstjórn. Samkvæmt heimildum vilja formennirnir freista þess að halda áfram stjórnarsamstarfinu og láta eins og allt sé með felldu, sem svo er vissulega ekki eins og flestir gera sér ljóst. Ofursterka límið í ráðherrastólunum er það sem heldur sundraðri ríkisstjórn saman, sannkallað Jötungrip.

Bjarni Benediktsson, sem hefur þótt heldur leiðitamur forsætisráðherranum sem hann kom til valda, var engu að síður alveg skýrmæltur um það á fundinum að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki sætta sig við frekari yfirgang af hálfu Svandísar Svavarsdóttur varðandi hvalveiðimálin. Hún stöðvaði veiðar til 1. september á þessu ári og bar fyrir sig seint fram kominni skýrslu um velferð hvala. Hvalur hf. hefur haldið rúmlega 100 manns við störf í allt sumar og hefur lýst því yfir að hvalveiðar hefjist þann 1. september þegar bann Svandísar rennur út. Hvalur hf. og Kristján Loftsson hafa verið helstu fjárhagslegir bakhjarlar Sjálfstæðisflokksins í áratugi.

Formaður Sjálfstæðisflokksins krefst þess að bannið verði ekki framlengt. Verði Svandís ekki við því að láta staðar numið hefur Bjarni gefið skýrt til kynna að stjórnarsamstarfinu sé lokið. Það er alveg skýrt að við myndun núverandi ríkisstjórnar var tekið fram að ekki væri ætlunin að hætta hvalveiðum við Ísland þó svo að Vinstri græn hafi haft það á stefnuskrá sinni um árabil að hætta hvalveiðum. En stjórnarsáttmálinn er alveg skýr varðandi þetta mál. Bjarni hefur einnig undirstrikað eftir fund formannana að ágreiningur um hvalveiðimálið hafi ekki gert stjórnarsamstarfinu gott.

Katrín Jakobsdóttir tók ákvörðun um hvalveiðibann í sumar með Svandísi. Það hefur verið staðfest formlega eftir að DV gerði fyrirspurn um málið. Katrín getur ekki vikið sér undan því með nokkrum hætti og reynir það ekki lengur. Henni er fyllilega ljóst að ríkisstjórn hennar er fallin ef Vinstri grænir reyna eitthvað meira á þolrif samstarfsflokkanna í þessu máli.

Katrín hefur nú sett Svandísi stólinn fyrir dyrnar hvað þetta varðar og hún mun ekki framlengja bannið um næstu mánaðarmót. Með því telur Bjarni Benediktsson að hann geti heldur styrkt stöðu sína gagnvart foxillum flokksmönnum sínum sem sviðið hefur undan yfirgangi Svandísar í þessu máli. Það leiðir hins vegar til þess að með því að leyfa hvalveiðar aftur í byrjun september viðurkennir Svandís að upphlaup hennar hafi verið hreinn pólitískur loddaraleikur en alls ekki umhyggja fyrir þessum dýrum sem Hvalur hf. drepur í höfunum með kvalarfullum hætti. Svandís stendur þá eftir niðurlægð og nánast rassskellt. Henni verður fórnað.

Oft veltir lítil þúfa stóru hlassi. Nú má spyrja hvort Kristján Loftsson eða Svandís Svavarsdóttir teljist vera litla þúfan í þessu máli?

- Ólafur Arnarson