Klara varar íslendinga við: „ég vakna við að sonur minn grætur og er að reyna að vekja mig“ - vill að saga hennar verði til þess að hjálpa öðrum

Klara Guðmundsdóttir er einstæð móðir þriggja ára gamals drengs. Líf þeirra mæðgina breyttist heldur betur einn morguninn fyrr á þessu ári þegar Klara fékk skyndilega flogakast ein heima með syninum.

„Sem betur fer var ég heima en ekki undir stýri með minn son minn sem er þriggja ára. Guð má vita hvað hefði gerst,“ segir Klara í samtali við Hringbraut en Hun.is fjallaði fyrst um málið.

Klara sem er þrjátíu og átta ára gömul lifir mjög hefðbundnu lífi. Hún starfar á hárgreiðslustofu, býr ein með syni sínum og hefur í nógu að snúast eins og flestir foreldrar.

Sonurinn grætur og reynir að vekja hana

Í janúar á þessu ári tók Klara þá ákvörðun að hætta að drekka áfengi. Í kjölfarið fór hún að auka drykkju sína á orkudrykkjum og áður en hún vissi af var hún farin að drekka allt að fimm orkudrykki á dag.

Það var svo þann 22. júní síðastliðinn sem áfallið dundi yfir. Klara vaknaði ásamt syni sínum og borðuðu þau morgunmat saman. Þegar þau höfðu lokið við hann ákvað Klara að fara í þvottahúsið með soninn til þess að þvo leikskólafötin hans.

„Ég fann fyrir svona einhverskonar sælutilfinningu, sem mér var seinna sagt að væri fyrirboði þess að flog væri í vændum og dett svo út. Ég man ekkert meira fyrr en ég vakna við að sonur minn grætur og er að reyna að vekja mig þar sem ég ligg á gólfinu,“ segir Klara sem áttaði sig á því um leið og hún stóð upp að á meðan hún hafði verið meðvitundarlaus hafði hún á sama tíma pissað í sig.

Bróðir Klöru skutlaði henni upp á spítala og segist hún hafa verið mjög ringluð og ekki hafa haft vit á því að skipta um buxur áður.

Þegar á spítalan kom var Klara send í allskonar rannsóknir og lá hún inni í sólarhring.

„Ég fór í hjartaómskoðun, höfuðskanna og heilalínurit. Ég tel mig hafa verið heppna að það fór ekki verr en hjartalæknirinn sagði að það væri ekki komin nein skemmd á hjartað né stækkun,“ segir Klara en niðurstaða rannsóknanna leiddi í ljós að orkudrykkjaneysla Klöru var orsakavaldurinn á flogakastinu.

Tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist

„Ég held að þetta sé tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist. Þetta miðast við þyngd hvers og eins hvað við þolum mikið og líkaminn minn var búinn að vinna upp þol. Ég vil ekki að þetta komi fyrir neinn og hryllir mér við að sjá unglingana drekka þetta því fólk er mis viðkvæmt. Ég er svo hrædd um það versta, að einhver fái hjartaáfall.“

Þá segir Klara að vegna flogakastsins megi hún ekki keyra bifreið í dag.

„Ég verð frjáls eftir 22. desember, þá er mesta hættan á því að ég fái aftur flog liðin hjá. Ég held líka að þeir sem séu með kvíða fái meira út úr því að drekka orkudrykki og sækjast því meira í þá. Frá mínu sjónarhorni fékk ég hálfgerða vímu eða vellíðan sem kannski eftir á að hugsa er ástæðan fyrir því að ég fór að auka orkudrykkjaneysluna meira og meira.“

Fyrir flogakastið hafði Klara aldrei upplifað neitt slíkt en eftir það hefur líf hennar aldeilis breyst.

„Ég hef aldrei lent áður í þessu og það geta allir fengið flog, það er undirliggjandi hjá öllum. Ég má ekki keyra í hálft ár, ég má ekki baða strákinn minn og helst ekki fara ein í sturtu. Mér var ráðlagt að trappa niður neyslu á orkudrykkjunum en ég hætti bara alveg. Ég fékk fráhvörf sem lýstu sér þannig að ég fékk brjálaðan hausverk og svo drakk ég endalaust mikið vatn. En orkudrykkurinn sem ég drakk er vatnslosandi svo það var eins og ég væri að drekka vökva fyrir allan þann tíma sem ég hafði drukkið hann.“

Klara segir að ráðlagður hámarksskamtur af koffeini hvern dag sé um 200 mg en að hver og einn drykkur sem hún drakk innihélt 180 mg. Ef hún drakk fimm drykki sama daginn var hún þá að innbirgða um 900 mg af koffeini sem er meira en fjórfaldur ráðlagður hámarksskammtur.

„Það er alltof mikið af krökkum að nota orkudrykki og þeir vita ekki hvað þeir eru að setja ofan í sig. Ég vil að saga mín verði til þess að hjálpa öðrum og vonandi til að koma í veg fyrir að fleiri lendi í þessu.“