Uppsetning Atla Rafns Sigurðarsonar á Heimkomunni eftir Harold Pinter er nánast svívirðilega ögrandi. Dauninn af mygluðu karlaveldinu leggur af sviðinu - og áhorfandanum stendur á köflum ekki sama um hvert leikverkið stefnir. Hér er mögnuðum texta Pinters í þessu 50 ára gömlu eilífðarstykki fylgt eftir af virðingu og natni í fjögurra stjarna sýningu; kuldinn á sviðinu er svo að segja óþægilegur rétt eins og samskipti fólksins í þessu verki hafa alltaf verið. Þó ekki væri nema sakir eftirminnilegs leiksigurs Björn Hlyns Haraldssonar í rullu hins ógeðfellda Lennys er þess virði að skoða svo að segja ófyrirleitnu uppfærsluna á einum magnaðasta texta leikhúsbókmenntanna í glimrandi þýðingu Braga Ólafssonar. Og einnig til að horfa á Ingvar E. Sigurðssonar í hræðilega góðri túlkun sinni á karlrembu allra tíma ...
Þjóðleikhúsið með alvöru pinter
Fleiri fréttir
Nýjast