Þjóðin getur þvegið af sér orð slyðrunar

„Það sem við erum að sjá í dag er algert einsdæmi síðustu 30 – 40 árin. Það má segja að núna ríki djúp pólitísk- og stjórnskipunarkreppa,“ sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi ráðherra, í samtali við Tóta í síðdegisþætti útvarps Hringbrautar í dag.

„Það má segja að það ríki fullkomið stjórnleysi. Svona ástand hefur aldrei ríkt og atburðarásin, eins og hún hefur verið síðustu daga, er ævintýralegri heldur en nokkur pólitískur skáldsagahöfundur hefði getað fært í orð.“

Össur sagði Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, hafa brugðist hárrétt við útspili Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, í gær þegar forsætisráðherrann mætti á Bessastaði og fór þess á leit að forsetinn skrifaði undir þingrofstillögu sína.

„Hann túlkaði þingræðisregluna algjörlega með réttum hætti. Í stað þess að fallast á þessa undarlegu beiðni forsætisráðherrans þá sagði hann honum, eðlilega, að hann myndi skoða hvernig staðan væri.“

Össur bætti við að Sigmundur Davíð hafi í raun verið að krefja forseta Íslands um að undirrita fyrir sig heimild til að rjúfa þing og fara í kosninar, plagg sem hann ætlaði síðan að nota í vopnaskaki við Sjálfstæðisflokkin. „Þetta er auðvitað algerlega fráleitt og fáheyrt og hefur ekki verið gert með þessum hætti í lýðveldissögunni.“

Tragikómískur farsi
Össur sagði þreifingar síðasta sólarhrings minna á tragikómískan farsa sem sýndi þá djúpu kreppu sem stjórnmálin og stjórnskipunin væru í í dag og ekki væri hægt að skipta nýjum forsætisráðherra inná eins og hverjum öðrum ráðherra. „Þetta er ekki eins og að skipta inná leikmanni í liði.“

Össur sagðist því telja réttast að horfa til upphaflegrar kröfu fólksins á Austurvelli en hún hafi verið um kosningar. Þessi krafa eigi enn rétt á sér, ekki síst vegna þess að ríkisstjórnin hafi „jafnvel tveimur sinnum á einni viku valdið því að Ísland hafi komist í mjög niðurlægjandi ljós á alþjóðavettvangi.“

„Fyrst auðvitað með þessum forsíðufregnum út um allan heim um stöðu forsætisráðherrans og í mjög hjákátlegu og neyðarlegu ljósi í gærkvöldi þegar forsætisráðherrann þráaðist við og vildi ekki fara.“

Hreinsun með kosningum
Össur sagðist telja best fyrir Ísland að gefa þjóðinni tækifæri til að hreinsa sig af þessari orðsporslöskun sé einfaldlega að leyfa þjóðinni að „skera úr um hvort hún vill þvo af sér orð slyðrunnar og kjósa þá yfir sig öðruvísi ríkisstjórn eða hvort hún vill þá gangast við því að hún eigi það skilið og það gerði hún með þvi að kjósa aftur þessa herramenn og frýr sem hafa stýrt okkur.“ Hann telji því eðlilegast í þessari stöðu að það verði kosningar.

Össir spáir því að endurnýjað stjórnarsamstarf Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks verði skammlíft og best væri að koma á fót einhvers konar starfsstjórn þangað til kosið yrði í haust, sem tæki að ser brýnustu verkefnin eins og að klára uppboð aflandskrónanna.

Ísland í svakalegu ljósi
Sjálfur segist Össur vera „fastur fyrir eins og klettur“ og hafi haldið ró sinni í umróti síðustu daga enda bregði hann sér „aldrei við sár né bana.“

Aðspurður sagði Össur, sem er eðli málsins samkvæmt, vel tengdur út um allan heim að hann hafi orðið harkalega var við álitshnekki Íslands á alþjóðavísu síðustu daga.

„Maður lifandi. Fólk er mjög hissa og þetta er sett í svo svakalegt ljós þegar höfuðleður forsætisráðherra okkar er tekið og neglt á sömu plaköt og manna sem við höfum hingað til ekki óskað eftir að vera í félagsskap við. Þetta er voðalegt mál fyrir Ísland og alveg ljóst að orðspor okkar hefur beðið hnekki. Það er ekki hægt að horfa fram hjá því en öll él styttir upp og Íslendingar geta þvegið þetta af sér með einarðri framgöngu.“

Því telji hann best fyrir stjórnmálin að spilin verði stokkuð með kosningum en segist þó halda að Ísland sé að sigla inn í langt skeið pólitísks óstöðugleika. Næstu þrjú kjörtímabil og jafnvel lengur. „Þá munum við búa við mjög veik stjórnmál og hér verði tíðar stjórnarkreppur. Ég held að þetta sé pólitískt dálítið erfitt pólitískt skeið framundan.“


Hlustið á þáttinn allan hér. (Viðtalið við Össur stendur milli 0:36:00 – 0:47:37)

Síðdegisþáttur Tóta er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18.

Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.