Þjóðarrétturinn er lamb

Íslenskir sauðfjárbændur afréðu á dögunum upp á eigin spýtur að þjóðarréttur Íslendinga eigi að vera lambakjöt. Lífsstílssíða Hringbrautar ber taugar til bænda sem leggja á sig erfiði við að rækta almennilega fjallasteik – og mælir því næsta eindregið með látlausum hrygg í ofninn. Saltaðu hann og pipraðu eins mikið og þú þorir og klappaðu blóðbergi á hann allan; skelltu svo í steikarpoka sem vel að merkja skiptir miklu í ofbakstrinum – og hægeldaðu hann á 150 gráðum í 2 tíma. Þá veistu líka af hverju lambakjötið er þjóðarrétturinn.