Samkvæmt niðurstöðu í könnum er fólk frekar líklegt til þess að halda fram hjá maka sínum og þá sérstaklega karlmenn.
Könnunin sem ástralska fyrirtækið Forktip framkvæmd sýndi einnig fram á það að karlmenn séu einnig líklegri til þess að halda oftar framhjá maka sínum en einu sinni. Fimm þúsund manns tóku þátt í könnuninni og í henni var skoðað bæði karla og konur.
69,1 prósent kvenna sögðust aldrei hafa haldið fram hjá og 59,6 prósent karlmanna sögðust aldrei hafa haldið fram hjá.
Af þeim sem tóku þátt í könnuninni viðurkenndu 40,4 prósent karlmanna að hafa haldið fram hjá núverandi maka og 30,9 prósent kvenna.
Af þeim karlmönnum sem viðurkenndu að hafa haldið fram hjá maka sínum sögðust 52,4 prósent hafa haldið fram hjá „oftar en einu sinni.“
Af þeim konum sem hafa haldið fram hjá maka sínum sögðust 31,2 prósent þeirra hafa haldið fram hjá oftar en einu sinni.
Þátttakendur voru spurðir um ástæður fyrir því að þeir héldu fram hjá. Algengustu ástæðurnar voru:
- Skortur ánægju og skemmtun í sambandi
- Stundar ekki nógu mikið kynlíf með makanum
- Makinn hélt fyrst fram hjá
- Makinn fullnægir þér ekki kynferðislega
Það sem gæti komið fólki mest á óvart er með hverjum þátttakendur halda fram hjá með.
- 49,9 prósent sögðust hafa haldið fram hjá með einhverjum sem þau þekktu ekki fyrir.
- 23,8 prósent þátttakenda sögðust hafa haldið fram hjá með vin maka síns.
- 22,4 prósent sögðust hafa haldið fram hjá með vinnufélaga.
- 3,9 prósent héldu fram hjá með fjölskyldumeðlim maka síns.